HÚSASJÁ

Bryggjuvegur 12

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
9 myndir

70 m²

Stærð

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

6500 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



359 dagar á sölu

sell

40.900.000 kr

587.644 kr/m²

Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallegt og vel staðsett sumarhús á um 6500 eignarlóð við Geysi í Haukadal. Lóðin liggur að golfvellinum í Haukadal og er sutt fra þeirri þjónustu sem er við Geysi. Um 100 km fjarlægð frá Reykjavík.

Húsið er skráð 69,9 fm skv. FMR að auki er milliloft undir súð og því ekki í fermetratölu eignarinnar.

Nánari lýsing eignar:

Rúmgóð forstofa með fatahengi.

Inntaksrými sem er einnig nýtt sem geymsla.

Hol sem tengir saman svefnherbergin, baðherbergi, alrými og stiga upp á milliloftið.

Bjart opið alrými með eldhúsi borðstofu og stofu. Aukin lofthæð og góðir gluggar til suðvesturs.

Eldhús með efri og neðri skápum, uppþvottavél, ofn og keramik helluborð. Frá alrými  er gengið út á stóra timburverönd til suðurs og vesturs. Þar er heitur pottur(rafmagns) og kamina. Útsýni yfir golfvöllinn. Gott rými fyrir borðstofu og stofu í alrýminu.

Frá alrýminu er gengið upp stiga á rúmgott milliloft sem hægt væri að nýta á marga vegu. Þaðan er gengið út á timbursvalir sem snúa í norðaustur.

Tvö rúmgóð svefnherbergi.

Baðherbergi með sturtuklefa. Þaðan er gengið út á timburverönd.

Náttúrusteinn á gólfi og gólfhiti.

Þetta er björt og falleg eign við golfvöllinn í Haukadal í þægilegri fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

Nánari upplýsingar veitir:

Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1.    Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2.    Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3.    Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4.    Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi

Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.

Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is

Kort af Bryggjuvegur 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9
Bryggjuvegur 12, 01-0101 | Húsasjá