HÚSASJÁ

Helluvað 13

01-0207 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

96 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2007

Byggingarár

7327 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



7 dagar á sölu

sell

78.800.000 kr

819.979 kr/m²

Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:

Í einkasölu:

Skemmtileg íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi með stæði í bílakjallara. Um er að ræða vel skipulagða 3ja herb íbúð á 2.hæð í fjölbýlishúsi í Norðlingaholtinu.

Íbúðin er vel skipulögð og björt með útsýni frá svölum og stofu að Elliðavatni og fjallahringinn og til Esju úr svefnherbergjum.

*** Stæði í bílakjallara ***

*** Stutt í náttúru og skóla ***

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp og flísum á gólfi.

Hol með parketi á gólfi.

Opið eldhús með fallegri innréttingu og parketi á gólfi.

Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á góðar svalir. Svalirnar eru rúmgóðar og snúa í suðaustur.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu og baðkari.

Rúmgott hjónaherbergi með parketi og góðu skápaplássi.

Barnaherbergið er með parketi á gólfi og fataskáp.

Þvottahús með flísum á gólfi.

Viðarparket er fljótandi yfir alla íbúðina, nema á votrýmum eru flísar.

Í sameign er vagna og hjólageymsla.

Sérmerkt geymsla í sameign sem er 7 fm

Bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni og fer lyfta úr bílakjallara beint fyrir framan íbúð, einungis tvær íbúðir eru á hæðinni. Sameiginleg þvottaaðstaða er í bílakjallara. komið er tengi fyri rafhleðslustöð frá ON við bílastæðið.

Staðsetningin á Helluvaði er mjög góð m.t.t. fjarlægðar frá skóla. Engin gata í skóla og göngufæri ca. 3 mínútur. Fylkir (fimleikar, karate, Parkour, rafdeild)  ásamt dansskóla ofl. í nágreninu.

Stutt í fallegar gönguleiðir s.s. við Rauðavatn, Heiðmörk, Elliðaárdalinn og í Víðidal.

Nánari upplýsingar veitir:

Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Helluvað 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð