Smáraflöt 3
01-0201 · 300 Akranesi



127 dagar á sölu
68.000.000 kr
642.115 kr/m²
Valfell fasteignamiðlun og ráðgjöf sími 570-4824.
Til afhendingar strax. Rúmgóð og björt 4ra herb. endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi.
Rúmgóð, björt og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með sérinngangi og suðursvölum. Íbúðin er skráð 105,9 fm. Forstofan er flísalögð, góður fataskápur í forstofu og flísar á gólfi. Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi öll með fataskápum. Baðherbergi með sturtuklefa, innrétting, handklæðaofn og gluggi á baði. Rúmgott sérþvottahús með innréttingu og skolvaski og geymsla.
Á alrými búðar er eldhús með eikarinnréttingu, ísskáp og uppþvottavél,( fylgir með ) ásamt rúmgóðri stofu og þaðan gengið út á svalir.
Í sameign á 1. hæð er hjóla og vagnageymsla. Rafhleðslustöð á sameiginlegu bílastæði fyrir húsið, tvö stæði auðkennd undir hleðslu.Allar nánari uppl. veitir Hákon á hakon@valfell.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna






















