HÚSASJÁ

Lómatjörn 12

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

156 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

2516 m²

Lóð

Garður

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



59 dagar á sölu

sell

93.600.000 kr

600.000 kr/m²

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt fjögurra herbergja endaraðhús ásamt bílskúr að Lómatjörn 12 í Njarðvík.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.

Eldhús, stofa og sjónvarpshol eru í opnu og björtu rými með góðri lofthæð. Þar eru flísar og parket á gólfum. Frá stofu er útgengt á verönd.

Í eldhúsi er stílhrein innrétting og nýleg tæki. Innbyggð uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð. Gert er ráð fyrir tvöföldum ísskáp.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi, þar er góður fataskápur.

Barnaherbergin tvö eru með parketi á gólfi og það eru fataskápar í þeim báðum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Góð innrétting upphengt salerni, handklæðaofn og sturta

Þvottahús með flísum á gólfi. Þaðan er innangengt í bílskúr. Góð innrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Bílskúr er með epoxy á gólfi. Innst í honum er stúkkað af rými/geymsla, geymsluloft þar ofaná.

Lóð er mjög snyrtileg. Góð verönd með skjólveggjum og heitum potti ( aðrar teikningar til af verönd sem geta fylgt með). Gólfhiti með þráðlausri hitastýringu er í öllu húsinu.

Góð staðsetning þar sem stutt er í skóla og leikskóla.  Eign sem vert er að skoða.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Lómatjörn 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu