HÚSASJÁ

Berjavellir 3

01-0304 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

128 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

2304 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



88 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

583.333 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir til sölu: vel skipulagða og rúmgóða 4ra herbergja íbúð að Berjarvöllum 3 í Hafnarfirði. íbúðin er með geymslu og er á þriðju hæð í lyftuhúsi. Birt heildarstærð eignar er 128,4fm og skiptist hún í forstofu, hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sér þvottahús innan íbúðar.

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu, á hægri hönd er góður fataskápur sem nýtist vel. Á hægri hönd úr forstofu er þvottahús. þvottahúsið er flísalagt og með innréttingu með vaski ásamt aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Gott vinnupláss er í rýminu. Svefnherbergin eru þrjú talsins. Hjónaherbergið er rúmgott og með stórum fataskáp. Barnaherbergin eru tvö, bæði rúmgóð og vel nýtanleg, með fataskápum. Eldhúsið er opið og tengist stofunni í björtu alrými. Innréttingin er með eyju sem stúkar eldhúsið af frá stofunni en heldur rýminu opnu. Stofan er björt með mörgum gluggum sem hleypa mikilli birtu inn. Úr stofu er gengt út á svalir.

Baðherbergið er flísalagt, bæði gólf og hluti veggja. Þar er baðkar og sturtuklefi, upphengt salerni og innrétting.

Gólfefni: Flísar eru á votrýmum (baðherbergi og þvottahúsi) en parket á öðrum rýmum íbúðarinnar.

Sér geymsla í kjallara. Sameign með hjóla- og vagnageymslu.

Umhverfi og staðsetning: Húsið er vel staðsett á Völlunum í Hafnarfirði. Stutt er í alla helstu þjónustu, grunn- og leikskóla ásamt íþróttasvæði Hauka og Ásvallalaug.

Nánari upplýsingar veitir:

Victor Levi R. Ferrua, löggiltur fasteignasali 868-2222 – victor@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af

heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Berjavellir 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð