HÚSASJÁ

Drekavellir 4

01-0201 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

153 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2007

Byggingarár

1179 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



76 dagar á sölu

sell

112.900.000 kr

737.427 kr/m²

Drekavellir 4 - Hafnarfirði

Opið hús sunnudaginn 15.febrúar frá kl 14:00-14:30

Vinsamlegast staðfestið komu á opna húsið á stofan@stofanfasteignir.is

STOFAN FASTEIGNASALA kynnir einstaklega rúmgóða og bjarta 5 herbergja íbúð við Drekavelli 4, á Völlunum í Hafnarfirði.

Sérinngangur er í íbúðina sem er á 2.hæð og fylgir merkt bílastæði.

Viðhaldslítið hús með aðeins 4 íbúðum.

SérinngangurMerkt bílastæðiHleðslustöð við húsiðYfirbyggðar svalir með svalalokun og gólfhitaTengi og niðurfall fyrir heitan pott á svölumSnjóbræðsla í stiga og við húsiðFjögur svefnherbergiBaðherbergi og gestasalerniHangandi gardínur frá Álnabæ í öllum gluggum fylgja ásamt myrkvunargardínu í hjónaherbergiÖll ljós og ljósakrónur fylgjaÖryggiskerfi fylgirHljóðeinangrandi loftdúkur í öllum rýmum íbúðar (möguleiki að skipta út loftadúk fyrir hvítan ef óskað er eftir því)Gólfhiti

Komið er inn í rúmgóða forstofu með flísum á gólfi.

Gangur / hol með parketi á gólfi. Fallegur og glæsilegur gangur þar sem vítt er á milli veggja.

Fataherbergi með góðum skápum. Var áður geymsla sem breytt var í fataherbergi.

Stofa / borðstofa er björt og rúmgóð með aukinni lofthæð og stórum gluggum, parket á gólfi. Útgengt úr stofu á rúmgóðar svalir með svalalokun og gólfhita.

Eldhús er með hvítri innréttingu frá Kvik, tveir bakarofnar í vinnuhæð, helluborð og háfur, tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og parketi á gólfi.

Þrjú rúmgóð herbergi með parketi á gólfi.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, innrétting með tveimur handlaugum, upphengt salerni, handklæðaofn og baðkar. Tengi fyrir þvottavélar á baðherbergi.

Gestasalerni með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni. Flísar á gólfi og veggjum að hluta. (Var áður þvottahús en breytt í gestasalerni).

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð.

Endurbætur skv.seljanda árið 2023:

Rafmagn endurnýjað að miklu leyti

Hljóðeinangrandi loftdúkur í allri íbúðinni

Baðherbergi endurnýjað

Gestasalerni bætt við þar sem áður var þvottahús

Gólfhiti settur í svalir og þær flísalagðar

Tengi og niðurfall sett fyrir heitan pott

Loftræsting staðsett í eldhúsi

Öryggiskerfi sett upp

Rafmagnsarinn settur upp.

Þetta er björt og rúmgóð eign á góðum stað á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, verslanir og helstu þjónustu.

Eign sem hefur verið endurnýjuð að miklu leyti.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.is og Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.

Kort af Drekavellir 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu