Lynghólar 5
01-0101 · 620 Dalvík



2 dagar á sölu
74.900.000 kr
510.566 kr/m²
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Lynghólar 5, 620 Dalvík - Skemmtileg 4ra herbergja parhúsaíbúð á einni hæð með bílskúr, í botnlangagötu á Dalvík - Stærð 146,7 m², þar af telur bílskúr 35,1 m²
Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í einu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottagang/þvottahús auk bílskúrs.
Forstofa er með flísum á gólfi.
Í eldhúsi er snyrtileg dökk innrétting með eikar bekkplötu auk eyju í sama stíl. Flísar eru á hluta veggja. Gaseldavél og stæði fyrir uppþvottavél.
Eldhús og stofa eru í opnu og rúmgóðu rými með aukinni lofthæð. Flísar eru á gólfum og innfelld lýsing í lofti. Úr stofu er gengið út á verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með flísum á gólfi, gólfhita og spónlögðum eikar fataskápum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, dökk innrétting, baðkar, sturtu og handklæðaofni.
Þvottahús/þvottagangur er með góðri spónlagðri eikar innréttingu. Þar er fellistigi upp á geymsluloft. Úr þvottahúsi er gengið inn í bílskúr.
Bílskúr er með flísum á gólfi og ágætri hvítri innréttingu með skolvask. Gönguhurð er á skúrnum við hliðina á rafdrifinni innkeyrsluhurð.
Lóðin er snyrtileg. Framan við bílskúrinn er rúmgott hellulagt bílaplan með snjóbræðslu í auk annars hellulagðs bílastæðis sunnan við steypta stétt heima að aðalinngangi hvar ekki er snjóbræðsla. Pláss er fyrir 4 - 5 bíla. Skjólveggir umlykja vestur- og suðurhlið hússins. Þar má finna steypta verönd auk grasflatar.
Annað
- Ljósar flísar eru á öllum gólfum íbúðar og gráar flísar í bílskúr.
- Gólfhiti er í allri eigninni.
- Innfelld ljós eru í alrými, baðherbergi og forstofu.
- Aukin lofthæð er í alrými og svefnherbergjum.
- Ljósleiðari er kominn inn og tengdur.
- Eignin er skemmtilega staðsett og opið svæði er vestan við húsið.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Seljandi hefur aldrei haft afnot af eigninni. Seljandi þekkir því ekki eignina umfram það sem fram kemur í opinberum gögnum og hægt er að sjá við sjónskoðun. Því leggur seljandi ríka áherslu á það við væntanlega kaupendur að þeir gæti sérstakrar árvekni við skoðun og úttekt á eigninni og veitir seljandi eða fasteignasali kaupanda allan nauðsynlegan aðgang að til þess.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























