HÚSASJÁ

Akurvellir 4

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

144 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

1346 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



154 dagar á sölu

sell

88.700.000 kr

614.266 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Falleg og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í litlu fjölbýlishúsi á rólegum og fjölskylduvænum stað á Völlunum með með suður palli. Stutt í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, skóla, sundlaug og glæsilegt íþróttasvæði Hauka.

** 3 svefnherbergi

** Stór suðurviðarverönd

** Fjölskylduvæn og góð staðseting

Nánari upplýsingar veita:

Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 144,4m2.

Eignin skiptist í forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, borðstofu, stofu, gang/vinnurými, baðherbergi, þvottahús og geymslu og pall með skjólgirðingu.

Nánari lýsing á eign;

Forstofa er rúmgóð með góðum forstofuskápum. Flísar á gólfi.

Gangur er bjartur gangur með innskoti með fataskáp í dag en væri hægt að nýta sem vinnurými. Flísar á gólfi.

Svefnherbergi I er rúmgott með skápum. Parket á gólfi.

Svefnherbergi II rúmgott með skápum. Parket á gólfi.

Svefnherbergi III er mjög bjart og rúmgott með góðum fataskápum. Parket á gólfi.

Eldhús með fallega innréttingu með góðu skápaplássi og eyju með góðum hirslum sem hægt er að sitja við. Flísar á milli skápa í eldhúsi. Flísar á gólfi

Stofa/borðstofa er mjög rúmgóð og björt með útgengi út á stóran viðarpall til suðurs með góðum skjólveggjum.  Parket á gólfi.

Baðherbergi er rúmgott með hvítri innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni, handklæðaofni. hornbaðkari og sturtuklefa. Flísar á veggjum og gólfi.

Þvottahús er innan íbúðar með vaski. Rýmið nýtist einnig sem geymsla.

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla og einnig eru hjólagrindur fyrir fram eignina.  Hiti er í stétt fyrir fram hús .

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Akurvellir 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu