HÚSASJÁ

Pósthússtræti 3

03-0202 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

129 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2006

Byggingarár

6559 m²

Lóð

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



450 dagar á sölu

sell

97.500.000 kr

757.576 kr/m²

Karl Jónsson löggiltur fasteignasali kynnir: Um er að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi að Pósthússtræti 3, ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu. Það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stærð íbúðarinnar 120,7 fm. ásamt sérgeymslu á jarðhæð sem er 8 fm., þannig að heildarstærð er 128,7 fm. Útgengt er út á yfirbyggðar svalir úr stofu. Svalirnar eru lokaðar með vönduðum svalalokunarbúnaði, stærð svalanna er 13,3 fm. Gólfhiti er í íbúðinni. Með íbúðinni fylgir sérstæði í bílageymslu, einnig er rúmgóð sameiginleg geymsla/hjólageymsla á jarðhæð. Sameign er snyrtileg og vel við haldið. Fjölbýlishúsið er mjög vel staðsett við sjóinn og í fallegu umhverfi. Lóðin er stór og vel frágengin, næg bílastæði.

Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.

Íbúðin skiptist þannig:

Anddyri, hol, tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi, þvottahús/geymsla, stórt opið eldhús, borðstofa, stofa, lokaðar svalir.

Lýsing:

Komið er inn í rúmgott anddyri með parketi á gólfi og góðum vönduðum skápum. Frá anddyri er gengið inn í hol. Frá holinu er gengið inn í tvö rúmgóð svefnherbergi og í endanum er rúmgott baðherbergi með sturtu. Frá holi er gengið inn í rúmgott fallegt eldhús með eyju og fallegri innréttingu. Borðstofan er í opnu rými við eldhúsið og stofuna. Stofan er stór og rúmgóð. Frá stofu er gengið út á rúmgóðar svalir. Sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílgeymslu fylgir íbúðinni. Bílgeymslan er mjög rúmgóð, en engar súlur eru í bílgeymslunni, þannig að það er mjög auðvelt að athafna sig. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.

Nánari lýsing:

Anddyri, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.

Þvottaherbergi/geymsla, flísar á gólfi, ný vönduð innrétting með skolvaski.

Hol, parket á gólfi.

Stofa og borðastofa, parket á gólfi, hurð úr stofu út á yfirbyggðar svalir með glæsilegu útsýni.

Svalir, yfirbyggðar 13,3 fm. svalir ( fm. ekki skráðir með í stærð eignar).

Eldhús, parket á gólfi, vönduð innrétting með eyju, granít borðplata á eyju. Stór tvöfaldur ísskápur og uppþvottavél fylgja íbúðinni.

Hjónaherbergi, parket á gólfi, stór vandaður fataskápur.

Svefnherbergi, parket á gólfi, vandaður fataskápur.

Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, innrétting, sturta.

Geymsla, sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni, geymslan er 8 fm. að stærð.

Bílastæði, sameiginlegur bílakjallari, góð þrif aðstaða fyrir bíla er í bílageymslu, eitt bílastæði í bílakjallara fylgir íbúðinni. Búið er að sitja upp hleðslustöð við bílastæðið.

Hér er um að ræða glæsilega íbúð í fallegu og vönduðu fjölbýlishúsi ásamt sérstæði í bílgeymslu. Íbúðin er á annarri hæð og er íbúðin mjög vel staðsett í húsinu, það er mikið og fallegt útsýni úr íbúðinni. Stutt er í allar helstu verslanir og þjónustu.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við Karl Jónsson hdl. löggiltur fasteignasali í síma 896-2822 eða netfang: karl@logmark.is

Kort af Pósthússtræti 3

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð