Pósthússtræti 3
03-0201 · 230 Reykjanesbæ



103 dagar á sölu
72.900.000 kr
713.307 kr/m²
Stuðlaberg Fasteignasala kynnir í einkasölu góða 102.fm íbúð á 2. hæð í 7. hæða lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílageymslu við Pósthússtræti 3 í Keflavík.
Forstofa hefur parket á gólfi og þar er góður skápur.
Í eldhúsi er parket á gólfi, þar er eikar-innrétting ásamt góðum tækjum, ofn, helluborð og háfur.
Stofa er parketlögð og hurð er út á lokaðar svalir frá stofu. Stofa og eldhús liggja saman í stóru opnu rými.
Á baðherbergi eru flísar bæði á gólfum og veggjum, þar er innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og sturtuklefi.
Í Þvottahúsi eru flísar á gólfi, þar er góð innrétting með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara og skolvaskur er í borði.
Svefnherbergin eru bæði parketlögð og skápar eru í þeim báðum.
*Bílastæði í rúmgóðri bílageymslu fylgir eigninni
*Hiti er í gólfum.
*Mjög rúmgóð og snyrtileg sameign, vítt til veggja og hátt til lofts
*Góð geymsla í kjallara fylgir eigninni.
*Svalalokun er á svölum.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Haraldur Guðmundsson
Lögg. fasteignasali
s. 661-9391 eða 420-4000
halli@studlaberg.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna























