HÚSASJÁ

Neðan-Sogsvegar 44D

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

94 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1999

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Heitur pottur



286 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

691.898 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu virkilega snyrtilegt 72,2 fm heilsárs-/sumarhús byggt árið 1999 en mikið endurnýjað árið 2011.  Húsið stendur á skógi vaxinni eignalóð, 8.400 fm að stærð í göngufæri frá Álftavatni. Stór og sólríkur lerkipallur umlykur húsið á þrjá vegu og við það er heitur pottur. Aðeins 45 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu og 10 mín akstur frá Selfossi.  Hlið lokar af sumarhúsabyggðina. Á lóðinni er einnig 21,6 fermetra gestahús sem byggt var 2020 með sér aðkomu frá sumarbústaðavegi að vestan.  Hitaveita, kalt vatn og rafmagn. Sannkölluð paradís!

Nánari lýsing:

Gengið er inn í litla forstofu og inna af henni er svefnherbergjagangur.  Þrjú svefnherbergi eru í húsinu.  Alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi og úr því er gönguhurð út á stóran sólpall og við útgang eru bæði þak og útveggir teknir fram sem myndar virkilega gott skjól. Á gólfum eru náttúrusteinflísar. Flísalagt baðherbergi með sturtu, upphengt wc og gönguhurð út á sólpall.

Vandað hús sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Járn á þaki var endurnýjað 2020.

Gestahús með sér aðkomu var byggt árið 2020 er 21,6 fm og telur baðherbergi með sturtuklefa og í opnu rými svefnherbergi og lítið eldhús.  Gestahúsið er með sér rotþró og lítill pallur er framan við það.

Fordæmi eru fyrir því í þessu sumarhúshverfi að stórum eignalóðum sé skipt í tvær lóðir.  Drög að slíkri skiptingu hafa verið teknuð fyrir þessa lóð.

Stutt að sækja frístundir s.s. veiði, sund, golf og fallegar gönguleiðir og stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, svo sem Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins.

Hringið og bókið skoðun

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Neðan-Sogsvegar 44D

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu