HÚSASJÁ

Blómvangur 2

01-0205 · 700 Egilsstöðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

71 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

2005

Byggingarár

2740 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



196 dagar á sölu

sell

39.900.000 kr

565.957 kr/m²

BYR fasteignasala kynnir BLÓMVANGUR 2 ÍBÚÐ 205 Egilsstöðum, í einkasölu. Íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi miðsvæðis á Egilsstöðum.

Stutt í alla almenna þjónustu, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.

Húsið er steypt fjölbýlishús, byggt árið 2005, eignin skiptist í íbúð, 63 m² og geymslu 7.5 m² samtals 70.5 m² samkvæmt skráningu HMS.

Skipulag íbúðar: Forstofa, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi og baðherbergi.

Í sameign: Sér geymsla, þvottahús, hjóla- og vagnageymsla og sorpgeymsla.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi og skóhirslu, flísar á gólfi.

Gangur liggur innan við forstofu að öðrum rýmum íbúðar.

Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu. Útgengt er úr stofu út á svalir.

Eldhús með upprunalegri innréttingu, í eldhúsi er helluborð, ofn, vifta og stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu (getur mögulega fylgt).

Svefnherbergi með opnum fataskáp yfir heilan vegg.

Baðherbergi, sturtuklefi, salerni, vaskinnrétting og spegill, flísar á gólfi, tengi er fyrir þvottavél á baðherbergi.

Gólfefni: Alrými, svefnherbergi og gangur með flæðandi harðparketi. Flísar á forstofu og baðherbergi.

Á jarðhæð í kjallara er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla, ásamt sameiginlegri þvottaaðstöðu. Sér geymsla, 7.5 m² að stærð, er í kjallara.

Allt innbú fylgir eigninni.

Húsið Blómvangur 2 er steypt með tveimur utanáliggjandi stigahúsum. Húsið er þrjár hæðir og kjallari. Tuttugu og þrjár íbúðir eru í húsinu.

Þak er flatt hefðbundið viðsnúið með pappa og fargi. Hellulögð stétt er að stigahúsum, malbikuð bílastæði, lóð er frágengin.

Lóð er sameiginleg 2.740,2 m² leigulóð í Múlaþings.

Skráning eignarinnar hjá HMS:

Fastanúmer 227-8156. Blómvangur 2.

Stærð: Íbúð 63.0 m²​, geymsla 7.5 m²​. Samtals 70.5 m².

Brunabótamat: 38.100.000 kr.

Fasteignamat: 32.850.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 39.100.000.

Byggingarár: 2005.

Byggingarefni: Steypa

Eignarhald. 01 0205 - Séreign

01 0017 Geymsla 7.5 Brúttó m²​. 01 0205 Íbúð 63 Brúttó m²​. 01 0212 Svalir 7.3 Brúttó m²​.

ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 471-2858 | byr@byrfasteignasala.is

Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is

Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.

5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is | Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Kort af Blómvangur 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Blómvangur 2, 01-0205 | Húsasjá