HÚSASJÁ

Kotabyggð 13

01-0101 · 606 Akureyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

151 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2008

Byggingarár

1820 m²

Lóð

Sérinngangur

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



33 dagar á sölu

sell

99.900.000 kr

662.467 kr/m²

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Kotabyggð 13

Um er að ræða fallega þriggja herbergja einbýlishús ásamt gestahúsi og gróðurhúsi í blandaðri byggð á fallegum útsýnisstað gegnt Akureyri.

Húsið stendur á fallegri gróinni eignarlóð sem er skráð 1.870,0 fm. Eignin skráð er samtals 150,8 fm. að stærð og skiptist í íbúðarhæð 70,3 fm., neðri hæð/kjallari 69,3 fm. og gestahús sem er 11,2 fm.  Á lóðinni er upphitað 14 fm. gróðurhús og góð timburverönd með heitum potti.

Húsið er timburhús á steyptum kjallara. Húsið er klætt að utan með flísum að undaskildum norðurgaflinum sem er viðarklæddur.

Eignin skiptist í anddyri, tvö svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu, stofa, eldhús og borðstofa í opnu rými.

Forstofa með flísum á gólfi, upptekið loft með innfelldum ljósum og góðum skáp.

Svefnherbergin eru tvö, bæði með parket á gólfi og upptekið loft. Innfelld lýsing og skápur er í öðru þeirra.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með góðri innréttingu við vask, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi og opnanlegur gluggi, þar er einnig góð innrétting með stæðri fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.

Eldhús, borðstofa og stofa í opnu rými með kamínu, parket á gólfi, upptekið loft með innfelldri lýsingu og eru þar stórir gólfsíðir gluggar með glæsilegu útsýni yfir Eyjafjörðinn og Akureyri. Ágætis innrétting með stæði fyrir uppþvottavél og tvöfaldan ísskáp, bakaraofn í vinnuhæð og gashelluborð. Úr alrýminu er útgangur á verönd með glæsilegu útsýni.

Kjallarinn skiptist í tvo hluta, fremri hlutinn er í dag nýttur sem fjölskyldurými. Í innri hlutanum er góð geymsla, aðeins lægra er til lofts þar. Búið er að tengja salerni í innra rýminu.

Gestahús er austan við hús með snyrtingu, upphitað svefnrými með parketi á gólfi og hvíttaður panill á veggjum og lofti.

Verönd með heitum potti og liggur með þremur hliðum hússins þaðan sem er glæsilegu útsýni.

Annað:

- Eignarlóð

- Verönd með heitum potti og glæsilegu útsýni.

- Gróðurhús sem er upphitað.

- Gestahús með svefnrými og salernisaðstöðu.

- Gólfhiti er á báðum hæðum hússins

- Hátt til lofts víða á efri hæð hússins.

- Mjög góð bílastæði

- Grindverkið hefur verið nýlega málað að mestum hluta.

- A.t.h skemmd í parket við eldhúskrók, líklega spenna í parketinu.

- A.t.h grummynd hefur verið breytt lítillega til að sýna núverandi nýtingu á gestahúsinu.

- Húsið er byggt á klöpp að hluta og hefur komið í leysingum smit í norðvesturhorni kjallarans.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

greta@byggd.is

olafur@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955

Kort af Kotabyggð 13

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð