HÚSASJÁ

Melgerði 7

01-0202 · 730 Reyðarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
15 myndir

90 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

2976 m²

Lóð

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



84 dagar á sölu

sell

39.900.000 kr

439.427 kr/m²

Melgerði 7 (íbúð 202): Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi miðsvæðis á Reyðarfirði. Stutt í flesta þjónustu, leik- og grunnskóla og helstu íþróttamannvirki.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Alrými: Anddyri, eldhús og stofa eru öll í sama rými með plastparketi og töföldum fataskáp, úr stofu er útgengt á svalir með útsýni til austurs og suður yfir fjörðinn.

Eldhús: Er í alrými, sæmilegasta eldhúsinnrétting og falleg útsýni til suðurs.

Stofa: Sömuleiðis í alrými, aðeins aðskilið þó.

Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, annað með fjórföldum fataskáp hitt tvöföldum, sama flæðandi parket og í alrými.

Baðherbergi: Flísar á gólf, fínasta vaskinnrétting og speglaskápur. Þvottahúsið er inn úr baðherberginu.

Geymsla: Sér geymsla fylgir íbúðinni en hana má finna á neðstu hæð sameignar, geymslan er 6,7m2 að stærð. Þar eru einnig hjóla- og vagnageymsla í sameign allra.

Íbúðin er í suð-austur horni hússins, svalir snúa í suð-austur.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is

Skráning eignarinnar skv. HMS:

Fasteignanúmer: F2276650

Stærð: Alls 90,2m² (íbúð er 83,5m2 og geymsla er 6,7m2)

Byggingarár: 2004

Byggingarefni: Steypa

Gildandi fasteignamat: 30.700.000 kr.

Fyrirhugað fasteignamat 2026: 36.750.000 kr.

Brunabótamat: 46.600.000 kr.

Lóð: Leigulóð í eigu Fjarðabyggðar, stærð lóðar er 2976,2m²

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m.vsk.

Skoðunarskylda kaupenda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.

Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Fasteignasala Austurlands // Austurvegi 21, 730 Reyðarfirði

Kort af Melgerði 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð