HÚSASJÁ

Eyrarskógur 57

01-0101 · 301 Akranesi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
46 myndir

85 m²

Stærð

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

3800 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla



28 dagar á sölu

sell

39.900.000 kr

472.189 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Eyrarskógur 57 í Svínadal, 84,5 fm sumarhús á góðum stað í Eyrarskógi í Svínadal.  Rétt um klukkutíma akstur frá Reykjavík.  Lóðin er 3800 fm leigulóð.  Húsið er byggt árið 2004 og hefur fengið gott viðhald alla tíð.  Stór timburverönd er við húsið þar sem er rafmagnspottur.

Afar fallegt útsýni er frá bústaðnum og stutt í veiði í vötnunum í Svínadal.  Stór grasflöt í kringum húsið með fánastöng.  Stórt bílastæði fyrir framan hús.  Möguleiki er að fá hluta búslóðar með húsinu.  Húsið er á steyptum grunn með steyptri gólfplötu.

Bókið skoðun hjá Rögnvaldi Erni Jónssyni á rognvaldur@eignamidlun.is eða í síma 660-3452

Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, anddyri, stofu/eldhús, baðherbergi og geymslu.  Þá er geymsluskúr á lóðinni.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.

Nánari lýsing eignarinnar:

Anddyri er flísalagt með góðum fataskáp.

Baðherbergi er innaf anddyri og er flísalagt með klósett, handklæðaofni, sturtuklefa og vaskainnréttingu.

Tvö svefnherbergi eru á hæðinni og er annað með útgengi út á pall.  Bæði eru með parket á gólfi.

Stofa er parketlögð með fallegri kamínu.  Útgengi frá stofu útá pall og stórir gluggar með góðu útsýni.

Eldhús er með góðri innréttingu með ofn, uppþvottavél og ísskáp.

Í kjallara er anddyri, geymsla og eitt svefnherbergi.  Anddyrið og geymsla eru flísalögð og svefnherbergið er með nýlegu parketi.

Á lóð er um 10 fm geymsluskúr.

Fallegur sumarbústaður sem vert er að skoða.  Rúmt er um húsið á lóðinni og langt í næsta hús.  Læst hlið er að svæðinu.  Innbú getur fylgt að stórum hluta.

Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Eyrarskógur 57

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð