HÚSASJÁ

Skólabraut 1

01-0101 · 260 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

106 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

2623 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



39 dagar á sölu

sell

66.900.000 kr

630.537 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Skólabraut 1, 260 Reykjanesbær.

Falleg, björt og mikið endurnýjuð íbúð á neðri hæð í fjórbýli  í Innri Njarðvík.  Byggingarár 2006. Birt stærð 106.1 fm.  Eldhús hefur verið mikið endurnýjað ásamt baðherbergis innréttingu og einnig hefur helmingur þaksins verið endurnýjað.

Þrjú svefnherbergi eru í eigninni með möguleika á því fjórða.

Einnig er 27 fm. Sólpallur.

Eignin er laus við kaupsamning.

Gengið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp. Þaðan er gengið inn í þvottarhús og rúmar það vel þvottavél og þurrkara og innangengt af þvottahúsi er  rúmgóð geymsla með glugga og ofni sem hægt er að nota sem fjórða herbergið.

Í eldhúsi er nýleg hvít eldhúsinnrétting með stórri 285 x100 cm. eyju með skápum öðru megin og skúffum hinu megin. Loft í eldhúsi hefur einnig verið tekið niður og sett innbyggð led lýsing með dimmer.

Baðherbergið hefur flísar á gólfum, og hvíta innréttingu með led ljósi í spegli og þar er baðkar með sturtu.

Barnaherbergin eru tvö og bæði með fataskáp.

Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp.

Nánari upplýsingar veita:

Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.

Ásta María Jónasdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 847-5746, tölvupóstur asta@allt.is

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og fataskáp.

Þvottahús: Rúmar vel þvottavél og þurrkara, vaskur og hillur eru á veggjum. Flísar á gólfi

Geymsla: Er rúmgóð og innangengt frá þvottahúsi. Flísar á gólfi.

Eldhús: Falleg hvít innrétting ásamt stórri eyju. Borðplötur eru dökk gráar. Innbyggður ísskpápur og uppþvottavél fylgir. Parket á gólfi.

Stofa: Opið er á milli stofu og eldhús, parket á gólfi.

Svefnherbergi: Er með parket á gólfi og fataskáp.

Barnaherbergi: Eru tvö, parket á gólfi og fataskápur í þeim báðum.

Baðherbergi:  Inniheldur nýlega, hvíta innréttingu, ljósar flísar í hólf og gólf og baðkar.

Garður og lóð Sameiginlega lóð fylgir eigninni ásamt 27fm. sólpalli sem var byggður 2018.

Þak hefur verið endurnýjað að hluta og með eigninni fylgir sérmerkt bílastæði og rúmgóð geymsla er í sameign.

Stutt er í leikskóla og skóla, verslun og sjoppu.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Skólabraut 1

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26