Sóltún 21A
01-0101 · 311 Borgarnesi



129 dagar á sölu
33.000.000 kr
469.417 kr/m²
Nes fasteignasala kynnir eignina:
Sóltún 21a, Hvanneyri, 311 Borgarbyggð.
Um er að ræða parhús, 70,3 fm að stærð skv. skráningu HMS, byggt úr timbri árið 2005.
Gengið er í forstofu. Þar innaf er alrými sem samanstendur af eldhúsi og stofu. Úr alrými er gengið í 2 svefnherbergi og baðherbergi. Gengt er úr stofu út á lóðina. Búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafbíla við húsið.
Nánari lýsing:
Forstofa flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa flísar á gólfi og gengt út á baklóð
Eldhús flísar á gólfi, snyrtileg innrétting með helluborð, bakarofn og stæði fyrir uppþvottavél.
Svefnherbergi flísar á gólfum og fataskápar.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta. Fibo Trespo á hluta veggja. Baðkar og innrétting. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara á baði.
Bílaplan er malarborið og grasflöt á lóðinni.
Á Hvanneyri er bæði skóli og leikskóli. Stutt í alla aðra þjónustu í Borgarnesi.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir






















