HÚSASJÁ

Álfkonuhvarf 35

03-0106 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

100 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

9872 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



75 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

759.000 kr/m²

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Laust strax - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulögð 100,0 m2, 3ja herbergja, íbúð á jarðhæð með sérinngangi og afgirtri hellulagðri verönd, í lyftuhúsi, ásamt bílastæði í lokuðum bílakjallara við Álfkonuhvarf 35 í Kópavogi. Eignin er skráð 100 m2 , þar af íbúð 89,7 m2 og geymsla 10,3 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Bílastæði í lokuðum, upphituðum bílakjallara fylgir eigninni. Vinsæl staðsetning við Ögurhvarf í Kópavogi. Stutt í vinsæl útivistarsvæði, skóla, verslun og alla helstu þjónustu. Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Helstu framkvæmdir á húsi samkvæmt upplýsingum frá húsfélagi: Árið 2021 var skipt um glugga víða í húsinu, múrskemmdir lagaðar og stigahús lagað. Árið 2025 var skipt um hurðir í ruslageymslu og útgangi úr bílakjallara, steining þrifin og sílenborið á allar hliðar hússins. Eins voru allir gluggapóstar hreinsaðir og málaðir.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax **

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.

Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með flísum á gólfi. Útgengt er á rúmgóðan afgirtan og hellulagðan sérafnotareit til suðurs.

Eldhús með flísum á gólfi, snyrtilegri eikar innréttingu, innbyggðri uppþvottavél, bakaraofni, helluborði og háfi. Flísar eru milli efri og neðri skápa. Gert er ráð fyrir að ísskápur standi við hlið innréttingar.

Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) með parketi á gólfi og góðu skápaplássi.

Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, góðri innréttingu með handlaug, vegghengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofni.

Þvottahús er innan íbúðar með vask, vinnuborð og flísar á gólfi.

Sérgeymsla er í sameign í kjallara og er mjög rúmgóð með góðum hillum, samtals 10,3 m2.

Bílastæði í lokuðum, upphituðum bílakjallara. Rafmagnshleðslustöð er við bílastæðið.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign í kjallara.

Verð kr. 75.900.000,-

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Álfkonuhvarf 35

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð