Fossvegur 10
01-0404 · 800 Selfossi



8 dagar á sölu
56.900.000 kr
554.041 kr/m²
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu. Bjarta og rúmgóða útsýnisíbúð á efstu hæð í lyftublokk við Fossveg 10, á Selfossi. Íbúðin er 96,2 fm þar við bætist geymsla á jarðhæð 6,5 fm, samtals 102,7 fm. Húsið er byggt árið 2004. Sérinngangur í íbúð af svölum. Virkilega fallegt útsýni.
********** Bókið einkaskoðun********** Íbúð sem er tóm og tilbúin til afhendingar ******************
Nánari lýsing:
Eignin telur forstofu með flísum á gólfi og fataskáp, gangur með parketi á gólfi, tvö svefnherbergi með parketi á gólfi, annað þeirra með stórum fataskáp og hitt með minni. Rúmgott baðherbergi með flísum á gólfi, innréttingu og sturtuklefa. Þvottahús með flísum á gólfi og innréttingu, samliggjandi stofa og eldhús með parketi á gólfi og góðri spónlagðri innréttingu. Góðar 7,1 fm svalir eru á íbúðinni sem snúa mót suðvestri. Á jarðhæð er 6,5 fm geymsla. Húsið er steypueiningahús einangrað að utan með viðhaldslítilli álklæðningu.
Gott stigahús með lyftu er í húsinu, sérinngangur í íbúð af svölum.
Falleg íbúð, vel umgengin á góðum stað með frábæru útsýni.
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














