Fossvegur 10
01-0203 · 800 Selfossi



3 dagar á sölu
55.900.000 kr
546.967 kr/m²
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna;
-Laus til afhendingar við kaupsamning-
Snyrtileg íbúð í góðu fjölbýli á góðum stað á Selfossi.
Húsið er byggt úr forsteyptum einingum og klætt að utan með litaðri álklæðningu.
Íbúðin sem er á annari hæð er alls 102,2m2 að stærð og er geymsla á jarðhæð 6m2 þar af.
Íbúðin skiptist í forstofu, 2 herbergi, baðherbergi, þvottahús, geymslu, stofu og eldhús auk annarar geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og þar er fataskápur.
Geymsla innan íbúðar er parketlögð og þar eru góðar hillur.
Herbergin eru bæði parketlögð og fataskápar eru í þeim báðum.
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er góð innrétting og sturta.
Þvottahúsið er flísalagt og þar er góð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhúsið er parketlagt og þar snyritleg innrétting.
Stofan er parketlögð og þar er útgegnt á góðar svalir.
Geymsla í sameign er með máluðu gólfi.
Sameign er snyrtileg.
Lóðin er gróin og bílaplan er malbikað.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























