HÚSASJÁ

Tröllateigur 51

01-0204 · 270 Mosfellsbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

110 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

2396 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



52 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

773.929 kr/m²

** Opið hús mánudaginn 19. janúar frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali -  svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 109,7 m2, 4ra herbergja endaíbúð með sérinngangi á jarðhæð við Tröllateig 51 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 109,7 m2, þar af íbúð 101,7 m2 og geymsla 8 m2. Eignin skiptist í þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, forstofu, eldhús, stofu og borðstofu. Sérgeymsla í sameign. Svalir í norðurátt með fallegu útsýni. Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.

Skv. upplýsingum frá eiganda og húsfélaginu þá má setja upp timburverönd fyrir framan hús líkt og hefur verið gert fyrir framan íbúð 201. Eignin hefur fengið talsverðar endurbætur en nýlega var eldhús endurnýjað, lagt nýtt parket, nýir fataskápar og nýjar innihurðir. Seljandi mun klára að setja upp gólflista, setja upp hurð á þvottahús og laga hurðargat í forstofu fyrir afhendingu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Nánari lýsing:

Forstofa er með fataskápum og parketi á gólfi.

Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu og parketi á gólfi. Í innréttingu er ofn, helluborð og vaskur. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.

Stofa/borðstofa er rúmgóð og með parketi á gólfi. Úr stofu er útgengt á svalir í norðurátt.

Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 2 er með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi nr. 3 er með fataskápum og parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt og með ljósri innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari, sturtuklefa og handklæðaofni.

Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara

Sérgeymsla er í sameign. Skráð 8,0 m2.

Íbúðinni fylgir hlutdeild að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.

Verð kr. 84.900.000-.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Kort af Tröllateigur 51

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36