HÚSASJÁ

Pósthússtræti 1

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

102 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

6559 m²

Lóð

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

68.500.000 kr

672.888 kr/m²

Smelltu hér Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina: Pósthússtræti 1, 230 Reykjanesbær,

Um er að ræða mjög góða 101.8fm íbúð á 1. hæð í 7 hæða lyftuhúsi ásamt bílastæði í bílageymslu.

Eignin er laus við kaupsamning.

Gengið er inn í forstofu með parketi á gólfi og góðum klæðaskáp. Úr forstofu er gengið inn gang sem einnig er parketlagður og tengir saman helstu rými eignarinnar.

Eldhús með snyrtilegri innréttingu og góðum tækjum; ofni, helluborði, háf og uppþvottavél. Gólf í eldhúsi er flísalagt. Stofa er í opnu rými með eldhúsinu, parketlögð og þaðan er hurð út á hellulagða stétt.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og að hluta á veggjum, með innréttingu, handklæðaofni, upphengdu salerni og sturtu. Þvottahús er rúmgott, flísalagt, með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara ásamt skolvaski.

Í íbúðinni eru tvö herbergi: hjónaherbergi er parketlagt með góðum klæðaskápum og svefnherbergi er parketlagt með klæðaskáp.

*Bílastæði í rúmgóðri bílageymslu fylgir eigninni

*Hiti er í gólfum.

*Mjög rúmgóð og snyrtileg sameign.

*Góð geymsla í kjallara fylgir eigninni.

Nánari upplýsingar veita:

Halla Vilbergsdóttir nemi til löggildingar fasteignasala, í síma 772-7930, tölvupóstur halla@allt.is.

Ásta María Jónasdóttir löggiltur fasteignasali, í síma 847-5746, tölvupóstur asta@allt.is

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: Er með parket á gólfi og þar er góður klæðaskápur.

Gangur: Hefur parket á gólfi.

Eldhús: Þar er snyrtileg innrétting ásamt góðum tækjum, ofn, helluborð, háfur og uppþvottavél. Gólf er flísalagt.

Stofa: Er í opnu rými með eldhúsi, er parketlögð og hurð  út á hellulagða stétt frá stofu.

Baðherbergi: Eru flísar á gólfi og veggjum að hluta, þar er innrétting, handklæðaofn, upphengt salerni og sturta.

Þvottahús: Er rúmgott með flísar á gólfi, aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara, eins er skolvaskur.

Hjónaherbergi: Eru parketlagt með góða klæðaskápa.

Svefnherbergi: Er parketlagt með klæðaskáp.

Með því að smella á hlekkinn hér að neðan getur þú nálgast söluyfirlit eignarinnar.

*setja hlekk fyrir söluyfirlit*

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:

Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði

Kostnaður kaupanda:

1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.

2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.

3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.

4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.

5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – Fáðu tilboð í söluferlið -  Skráðu eignina þína í dag og tryggðu þér forskotið.

Kort af Pósthússtræti 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð