HÚSASJÁ

Sóleyjarimi 5

03-0404 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

99 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

7900 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



16 dagar á sölu

sell

82.900.000 kr

834.004 kr/m²

LANDMARK fasteignamiðlun og Ingibjörg Agnes Jónsdóttir, lögg. fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Íbúð fyrir 50 ára og eldri. Virkilega falleg og rúmgóð 3ja herb.íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Sóleyjarrima í Reykjavík. Yfirbyggðar svalir, stæði í hálf lokuðum bílalkallara. Eina íbúðin á sér stigagangi sem gengið er inn í af svölum. Enginn umgangur fram hjá herbergjum. Fallegt útsýni er úr íbúðinni.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu/borðstofu í opnu rými , tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús innan íbúðar en henni fylgir einnig stæði í bílakjallara, sér geymsla á jarðhæð ásamt hlutdeild í sameign.

Birt stærð samkv. HMS 99,4 m² og skiptist í íbúðarrými 92,3fm. ásamt geymslu sem er 7,1 fm.

Eignin getur verið afhent fljótt eða eftir samkomulagi.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT eða nánari upplýsingar og skoðunartíma veitir Ingibjörg Agnes í síma 897-6717 eða inga@landmark.is

✅ Björt og mjög rúmgóð íbúð.

✅ Fallegt útsýni til fjalla og yfir Faxaflóann.

✅ Sólríkar yfirbyggðar svalir.

✅ Stæði í bílakjallara.

✅ Stutt í þjónustu í Spönginni og fallegar gönguleiðir.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er flísalögð og hægt að loka inn í íbúðina.

Eldhús: Er í opnu rými með stofu/borðstofu. L-laga innrétting, flísalagt á milli skápa, gott vinnupláss og tengi fyrir uppþvottavél.

Stofa/borðstofa: Er parketlögð, björt og rúmgóð, útgengt á yfirbyggðar svalir með tréflísum á svalagólfi. Fallegt útsýni.

Herbergi 1: Er rúmgott, parketlagt með góðum fataskápum.

Herbergi 2: Er parketlagt með fataskáp.

Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt, sturtuklefi og góð innrétting.

Þvottahús:  Er flísalagt með hillum.

Geymsla: Er á jarðhæð (7,1 fm smkv. HMS).

Stæði: Sér stæði í bílakjallara. Stæði merkt (B-51)

Virkilega björt og fín íbúð í vönduðu lyftuhúsi, snyrtileg sameign og stæði í bílakjallara. Stutt er í þjónustu í Spönginni, eldriborgara starf í Borgum. Fallegar gönguleiðir í nágrenninu meðfram sjávarsíðunni, nálægð við golfvöll, sundlaug.

Húsgjöld eignar eru samtals ca. kr.31.679.- á mánuði en þá er innifalinn allur almennur rekstur húsfélaga, framkvæmdarsjóður,rekstur á bílakjallara, allur hiti, rafmagn í sameign.

Skoðunar- og aðgæsluskylda:

Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:

Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:

1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.

3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.

3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.

3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK

Pantaðu frítt söluverðmat

Kort af Sóleyjarimi 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu