HÚSASJÁ

Sóleyjarimi 11

02-0303 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

99 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

5013 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



50 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

806.256 kr/m²

Nýtt á skrá! Sóleyjarimi 11 í Reykjavík - Vel skipulögð 3ja herb. íbúð með stórum svölum með svalalokun og bílastæði í bílakjallara!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega 99,1 fermetra 3ja herbergja íbúð með stórum svölum til suðurs í góðu fjölbýli með lyftu við Sóleyjarima 11 í Reykjavík. Íbúðin er með rúmgóðu alrými (stofa og eldhús) með útgengi á stórar svalir með svalalokun. Tvö svefnherbergi, gott baðherbergi og þvottaherbergi innan íbúðar. Sér bílastæði í bílakjallara, sérgeymsla í kjallara sem er 9,7 fermetrar og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Snyrtileg lóð og sameiginlegt malbikuð bílastæði sem eru staðsett ofan á bílakjallara. Tyrfð lóð og hellulögð stétt að inngangi.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Rimahverfi í Reykjavík. Leikskóli og grunnskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum. Auk þess er stutt í íþróttamiðstöðina í Egilshöll.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með flísum á gólfi og skápum.

Stofa: Er rúmgóð með parketi á gólfi og gluggum til suðurs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir.

Svalir: Eru stórar og með svalalokun. Snúa inn í bakgarð hússins til suðurs.

Eldhús: Með parketi á gólfi og viðar eldhúsinnréttingu. Stál bakaraofn og helluborð. Flísar á milli skápa og gluggi til norðurs.

Baðherbergi: Með flísum á gólfi og veggjum. Sturta og baðkar með sturtutækjum. Innrétting við vask, upphengt salerni, handklæðaofn og útloftun.

Hjónaherbergi: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.

Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til norðurs.

Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, vinnuborði, vask og tenglum fyrir þvottavél/þurrkara.

Bílastæði í bílakjallara: Er staðsett í lokuðum snyrtilegum bílakjallara (númer 303). Búið að leggja fyrir rafhleðslukerfi í bílakjallara. Þvottastæði er staðsett í bílakjallara.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,7 fermetrar að stærð. Málað gólf.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett í sameign hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is

Kort af Sóleyjarimi 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35