HÚSASJÁ

Sóleyjarimi 9

01-0302 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

118 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

5013 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



100 dagar á sölu

sell

94.400.000 kr

802.721 kr/m²

Fasteignasalan Heimaland ehf. og Guðný Guðm., lögg.fasts. kynna í einkasölu rúmgóða, vandaða 50+, 3ja herbergja stóra íbúð með sér inngangi af svölum. Sér stæði í bílageymslu. Snyrtilegt og vel viðhaldið fjölbýli með lyftu og hjólastólaaðgengi.  Fallegar gönguleiðr í nágrenninu t.d. með sjávarsíðunni þar sem er skemmtilegt fugla- og selalíf. Verslanir og þjónusta eru í stuttu göngufæri. Íbúðin er 117.6 fm að viðbættu sér bílastæði í upphituðu bílageymsluhúsi.

Nánari upplýsingar veitir Guðný Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8216610, tölvupóstur gudny@heimaland.is.

Íbúð

Eldhús er rúmgott með vandaðri millidökkri  u-laga viðarinnréttingu, vaskur við glugga.

Forstofa er björt, með hurð inn í íbúðarýmið, stórum fataskáp og hillum.

Stofa/borðstofa er stórt og opið rými sem tengist elhúsinu og þar er gengið út á suðursvalirnar.

Herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með góðum fataskápum.

Baðherbergi er með hvítum tækjum, upphengdu salerni, sturtuklefa, handklæðaofni og stórri innréttingu. Góð lýsing.

Þvottaherbergi með rúmgóðri innréttingu. Skolvaskur í borði. Vélar í vinnuhæð.

Innréttingar, innihurðar og gólfefni; Innréttingar og innihurðar eru í sama milidökka viðnum nema í þvottaherbergi eru innréttingar hvítar. Mjilliljóst parket er fljótandi á öllum rýmum nema flísar eru á baðherbergi, þvottaherbergi og forstofunni, parketflisar á  eldhúsinu.

Stórar suður svalir þar sem yfirsýn næst yfir borgina að hluta.

Sér geymsla á fyrstu hæð í sameigninni.  Stigagangur er bjartur, sérlega snyrtilegur, nýlega málaður og teppalagður með lyftu og þaðan gengið út á svalir sem leiða að inngöngum íbúða.

Bílageymslan er innangeng (hjólastólaaðgengi) snyrtileg og er sérlega vel staðsett stæðið fyrir þessa íbúð. Bílaþvottaaðstaða í bílageymslunni. Búið að leggja rafmagn í stæði fyrir hleðslustöð.

Húsið er fimm hæða viðhaldslétt álklætt steinhús. Aðeins einn stigagangur.

Lóðin/aðkoman/bílastæðin er malbikuð og hellulögð og sérlega rúmgóð með nægum bílastæðum. Hitalögn í gönguaðkomu.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Kort af Sóleyjarimi 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20