Furuvellir 3
01-0101 · 221 Hafnarfirði



1 dagar á sölu
118.900.000 kr
783.784 kr/m²
Einstaklega fallegt og velviðhaldið einbýlishús á einni hæð með bílskúr, heitum potti og stórum skjólgóðum sólpalli við Furuvelli 3 í Hafnarfirði.
Eignin er alls 151,7 fm og skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 126,2 fm og bílskúr 25,5 fm skv. fasteignaskrá.
Nánari lýsing:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp.
Eldhús og stofa og borðstofa í björtu alrými með aukinni lofthæð.
Eldhús með hvítri innréttingu, stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Spanhelluborð og ofn í vinnuhæð.
Stofa og borðstofa rúmgott með útgengt út á sólpall.
Hjónaherbergi með fataherbergi, útgengt út á sólpall.
Tvö rúmgóð barnaherbergi með skápum.
Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, sturti baðkar,handklæðaofn, innrétting með skáp og opnanlegur gluggi.
Innaf forstofu er farið inn í þvottahús og bílskúr.
Þvottahús með fallegri innréttingu, stæði fyrir þvottavél og þurrkara með tauskúffum undir. Skápar, hillur og vaskur, opnanlegur gluggi.
Einnig er auka snyrting inni í þvottahúsinu.
Bílskúr með flísum á gólfi, geymsluloft sem er lokað, rafmagnsopnari. Útgengt út í garð er úr bílskúrnum. 3ja fasa rafmagn.
Lokaður sólpallur ( ca 120 fm) með góðum skjólveggjum, heitur pottur, tveir geymsluskúrar.
Garður fallegur og gróinn.
Bílaplan með stæði fyrir 4-5 bíla, hiti í gönguleið að húsi og stórum hluta bílaplans.
Hleðslustöð komin sem fylgir.
Gólfefni hússins er parket fyrir utan votrými en þar eru flísar.
Stór og góð lóð ( 759 fm)
Eignin er ekki í samræmi við upphaflegar teikningar.
Framkvæmdir seinustu ára skv. seljanda:
Parket 2022 ( frá BYKO með 48 tíma vatnsvörn)
Eldhúsinnrétting endurnýjuð 2020
Þvottahúsinnrétting endurnýjuð 2022
Virkilega falleg og vel skipulögð eign á þessum vinsæla stað á völlunum þar sem stutt er í skóla, leikskóla,tengibrautir og matvöruverslanir.
Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
































