HÚSASJÁ

Ketilhúshagi

01-0101 · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
41 myndir

81 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



285 dagar á sölu

sell

34.000.000 kr

417.178 kr/m²

FANNBERG FASTEIGNASALA EHF, sími: 487-5028.

KETILHÚSHAGI 40 Í RANGÁRÞINGI YTRA

Um er að ræða sumarhús sem er bjálkahús byggt árið 2004 með viðbyggingu frá árinu 2016.  Húsið stendur á steyptum súlum og er einangrað að utanverðu og klætt með liggjandi timburklæðningu.  Stærð hússins er skráð 72,6 fm. því til viðbótar er viðbyggingin sem er um 12,5 fm og heildarstærð því um 85 fm.  Að innanverðu eru veggir klæddir með panel og loft eru klædd með viðarklæðningu. Húsið telur:  Anddyri með flísum á gólfi.  Stofu með parketi á gólfi.  Sólstofu með parketi og flísum á gólfi  Eldhús með parketi á gólfi og innréttingu.  Baðherbergi með flísum á gólfi, sturtu og innréttingu.  Tvö svefnherbergi með parketi á gólfum, salerni er inn af hjónaherberginu.  Við húsið er verönd úr timbri, á henni er heitur pottur og útigeymsla.  Á lóðinni er geymsla byggð úr timbri árið 2004.  Hún er einangruð og klædd að innan verðu.  Húsið er kynt með hitaveitu  Stærð hennar er um 15fm.  Á lóðinni er all nokkur trjágróður sem gefur gott skjól.

Kaupendur greiða engin umsýslugjöld.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðmundur Einarsson lgf. gsm: 863-9528 og netfang: gumdundur@fannberg.is

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Ketilhúshagi

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu