Réttarheiði 22
02-0101 · 810 Hveragerði



2 dagar á sölu
92.800.000 kr
563.449 kr/m²
Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir lögg. fasteignasali kynna í einkasölu vel skipulagt og fallegt raðhús með rúmgóðum bílskúr við Réttarheiði 22 í Hveragerði.
Íbúðin er fjögurra herbergja, skjólgóð verönd með heitum potti, innarlega í litlum botnlanga í grónu hverfi.
Um er að ræða 164,7 fm raðhús á einni hæð, eignin skiptist í 126,7 fm íbúð og 38 fm bílskúr. Aukin lofthæð er í allri eigninni.
Skipulag og nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og þar er tvöfaldur fataskápur.
Borðstofa/stofa er bjart og fallegt rými.
Í eldhúsi er rúmgóð innrétting, neðri skápar eru svarbrúnir en efri skápar hvítir.
Svefnherbergi eru þrjú, fataskápar eru í þeim öllum.
Á baðherbergi eru flísar á gólfi og veggir eru flísalagðir að hluta. Þar er svarbrún innrétting, baðkar með sturtu og upphengt klósett.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílskúrs, þar er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er flísalagður, þar er geymsluloft og geymsla, útgengt er úr geymslu í bakgarð.
Aukin lofthæð er í eigninni og flæðandi harðparket á gólfi íbúðar nema á forstofu, baðhergi og þvottahúsi, þar eru flísar.
Skjólsæl hellulögð verönd snýr til suðurs, hún er afgirt með timburskjólveggjum, þar er heitur pottur. Bílaplan er hellulagt og þar er hleðslustöð.
Húsið er steypt, byggt árið 2004, og klætt með liggjandi bárujárnsklæðningu. Undir húsinu er skriðkjallari.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir, lögg. fasteignasali í síma 860-2078 eða á kristin@haborg.is.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























