HÚSASJÁ

Kristnibraut 97

01-0201 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

86 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

4640 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



50 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

814.685 kr/m²

Guðmundur Þór Júlíusson og Ástþór Reynir löggiltir fasteignasalar hjá RE/MAX fasteignasölu kynna í einkasölu:

Glæsileg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi af svölum á 2. hæð í lyftuhúsi á góðum stað við Kristnibraut 97 í Grafarholti. Þvottahús innan íbúðar. Íbúðinni fylgir bílastæði undir skyggni.

Sér inngangur af svalagangi. Næg bílastæði á lóð.

Bókið skoðun hjá Gumma Júl í síma 858-7410 eða með tölvupósti á netfangið gj@remax.is eða á Ástþór Reyni í síma 899-6753 eða með tölvupósti á netfangið arg@remax.is

Nánari lýsing:

Anddyri: Hengi á vegg og flísar á gólfi, Fataskápar í holi/gangi inn af anddyri.

Hjónaherbergi: Er á vinstri hönd við hlið anddyris. Fataskápar með eikarhurðum og parket á gólfi. Gott útsýni í austur.

Barnaherbergi: Ágætlega rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi. Gott útsýni í austur að Úlfarsárdal og í morgunsól.

Eldhús: Eldhúsinnrétting með efri og neðri skápa, ofni, helluborði,vaski og blöndunartækjum. Efri skápar og flísar á milli skápa og við helluborð.

Stofa/borðstofa: Björt stofa og borðstofa í einu rými með parketi á gólfi. Útgengt á góðar suðvestursvalir frá borðstofu.

Baðherbergi: Ljósar flísar á veggjum við baðkar og ljósar gólfflísar. Snyrtileg innrétting með hvítu vaskborði. Baðkar með sturtuaðstöðu og glerþili við baðkar. Upphengt innfellt salerni.

Þvottahús: Ágætlega rúmgott, inn af eldhúsi með borðplötu og skolvaski og plássi fyrir þvottavélar og þurkara þar við. Flísar á gólfi og hillur á vegg bak við hurð.

Geymsla: Sér geymsla í sameign á 1. hæð. Telur 8fm.

Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á 1. hæð sitthvorum megin við innang með hurð að bílaplani. Einnig er sameignargeymsla á jarðhæð.

Garður og lóð: Snyrtileg lóð með grasflöt og trjágróðri. Næg bílastæði framan við hús. Fara á í að setja upp 2-4 hleðslustöðvar á lóð við bílaplan framan við hús.

Eigninni hefur verið vel viðhaldið síðustu ár:

Það er nýbúið að skipta um útiljós á svölum og við bílastæðin.

Viðgerð á þaki árið 2023, þar var skipt um þakdúk og einangrun.

Nýbúið að setja upp hleðslustöðvar. 2024.

Allar nánari upplýsingar um eignina veitir:

Guðmundur Þór Júlíusson löggiltur fasteignasali í síma 858-7410 eða gj@remax.is

Ástþór Reynir löggiltur fasteignasali í síma 899-6753 eða arg@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Kristnibraut 97

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu