Fífumói 13
01-0202 · 800 Selfossi



22 dagar á sölu
57.500.000 kr
606.540 kr/m²
Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega snyrtilega og bjarta þriggja (4) herbergja íbúð á efri hæð í fjórbýlishúsi, Fífumóa 13-15 á Selfossi. Íbúðin er 94,8 fm. Húsið er byggt 2005 úr forsteyptum einingum. Malbikað bílaplan. Frábær staðsetning innst í botnlanga. Íbúðin er ný þrifin og tilbúin til afhendingar.
ÍBÚÐ: Komið inn í flísalagða forstofu með góðum fataskáp. Í opnu rými þar sem er eldhús, stofa og borðstofa er útgengi á fínar svalir með fallegu útsýni. Baðherbergi er flísalagt, sturtuklefi, upphengt wc og innrétting. Í sérherbergi er þvottahús með vinnuborði, efri hillum og skolvaski. Tvö góð svefnherbergi, eitt af þeim hjónaherbergi með stórum fataskáp og einnig er fataskápur í barnaherbergi. Þriðja herbergið í íbúðinni er skráð geymsla en hæglega hægt að nota það sem t.d. skrifstofu eða auka herbergi. Plastparket er á gólfum en flísar á votrýmum. Fallegar innréttingar, skápar og vönduð heimilistæki.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymslu á jarðhæð.
Björt og falleg íbúð! Virkilega gott innraskipulag þar sem hver fermetri er nýttur til fulls. Bókið skoðun - sýni samdægurs!
Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan HÚS því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir















