HÚSASJÁ

Daggarvellir 1

01-0101 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

120 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

3857 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús



42 dagar á sölu

sell

85.900.000 kr

715.237 kr/m²

RE/MAX og Guðrún Þórhalla, löggiltur fasteignasali kynna: Fallega og rúmgóð 4ra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi í litlu fjölbýli við Daggarvelli 1 í Hafnarfirði. Eignin, sem er 120,1 m² að stærð, býður upp á björt og vel skipulögð rými með útgangi á timburpall úr stofu, sem eykur notagildi hennar verulega. Allir skráðir fermetrar eignarinnar eru innan íbúðar samkvæmt HMS. Um er að ræða vel staðsetta eign sem er laus til afhendingar. Stutt er í alla helstu þjónustu; matvöruverslun, apótek, leik- og grunnskóla og íþróttasvæði Hauka, allt í þægilegri göngufjarlægð. Við bílastæði hússins hafa verið settar upp fjórar rafhleðslustöðvar, sem er mikill kostur fyrir eigendur rafbíla.

**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, KÍKTU Í HEIMSÓKN**

Söluyfirlit má nálgast hér

Nánari lýsing

Forstofa með fataskápum, flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa með góðri lofthæð og útgengi út á fallegan viðarpall sem snýr í suð og vesturs.

Eldhús með góðu skápaplássi, ofni í vinnuhæð, helluborði með viftu yfir, uppþvottavél og rúmgóður borðkrókur. Gler við borðkrók er filmuvarið.

Þrjú rúmgóð svefnherbergi, öll með fataskápum og harðparket á gólfi.

Baðherbergi með baðkari/sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni – rúmgóð innrétting. Flísalagt að hluta.

Þvottahús er innan íbúðar, með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, vinnuborð og vaski. Flísar á gólfi.

Geymsla er inn af þvottahúsi og er útbúin hillum.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.

Gólfefni eignar er harðparket og flísar.

Sumarið 2025 var farið yfir húsþakið, skipt um eina þakplötu, þakið var hreinsað og málað.

Falleg og vel staðsett eign á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Eignin er laus til afhendingar.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Guðrún Þórhalla Helgadóttir, löggiltur fasteignasali

Sími: 820-0490

Netfang: gudrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Daggarvellir 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð