HÚSASJÁ

Álfkonuhvarf 39

01-0201 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

112 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2005

Byggingarár

9051 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



15 dagar á sölu

sell

86.400.000 kr

773.500 kr/m²

Mjög falleg og vel með farin 111,7 fm 4ra herbergja endaíbúð á 2.hæð í góðu lyftuhúsi. Íbúð merkt 0201 ásamt bílastæði í bílageymslu merkt B14. Fallegt útsýni er úr íbúðinni. Íbúðin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpsstofu (getur verið þriðja svefnherbergið), baðherbergi, þvottaherbergi, stofu, opið eldhús og geymslu í kjallara.

Samkvæmt HMS er íbúðin merkt 01-0201 skráð 111,7 fm, þ.a. er geymsla íbúðarinnar í kjallara 7 fm. Bílastæði íbúðarinnar í bílageymslu er merkt 03-B14.

Nánari lýsing: Komið er inn í parketlagða forstofu með forstofuskáp. Mynd-dyrasími. Parketlagt herbergi með fataskáp. Parketlögð sjónvarpsstofa (sem getur verið þriðja svefnherbergið). Parketlagt hjónaherbergi með fataskáp. Flísalagt baðherbergi með baðinnréttingu, vegghengdu salerni, sturtutklefa og handklæðaofni. Inn af baðherbergi er þvottaherbergi með glugga, gólfflísum og innréttingu fyrir vélar í vinnuhæð. Stór parketlögð stofa með opnu parkeltlögðu eldhúsi með borðkrók. Veggflísar milli skápa, keramik helluborð, vifta og veggofn (mikið og fallegt útsýni er úr eldhúsi). Svaladyr eru úr stofu út á góðar suður-svalir með glerlokun.

Falleg og vel skipulögð íbúð. Snyrtileg sameign, hjóla- og vagnageymsla  og er innangengt úr sameign inn í bílageymslu.

Staðsetning er einstök í nálægð við Elliðavatn þar sem er mikið og fallegt útivistarsvæði. Verslanir og þjónusta er í nágrenninu og er stutt í leikskóla, grunnskóla, heilsugæslu, líkamsræktarstöðvar og almenningssamgöngur.

Íbúðin er laus til afhendingar.

Nánari upplýsingar veitir:  Geir Sigurðsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali, s: 655-9000, netfang: geir@husasalan.is.

Kort af Álfkonuhvarf 39

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð