Rjúpnasalir 12
01-0701 · 201 Kópavogi



4 dagar á sölu
79.900.000 kr
846.398 kr/m²
LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasala kynnir virklilega fallega og vel skipulagða eign við Rjúpnasali , íbúðin er 94,4 m2 þriggja herbergja útsýnisíbúð á sjöundu hæð í lyftuhúsi, með stæði í bílageymslu við Rjúpnasali 12 í Kópavogi. Eignin er skráð 94,4 fm. skv Fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 87 m2 og geymsla 7,4 m2. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Geymsla merkt 0025 og bílastæði merkt B28 fylgir eigninni. Í húsinu eru tvær lyftur og er sameignin til fyrirmyndar.
Nánari lýsing
Forstofan er flísalögð með góðum fataskápum.
Baðherbergi er flísalagt með baðkari með sturtuaðstöðu, upphengdu salerni og innréttingu.
Hjónaherbergi með góðum skápum, gengið út á svalir frá hjónaherbergi.
Barnaherbergi einnig með skápum.
Þvottahús er flísalagt með innréttingu, vaski og tengi fyrir þvottavél og þurrkara, góð aðstaða.
Stofa og eldhús eru í opnu alrými með glugga á tvo vegu með frábæru útsýni.
Eldhús er með eikarinnréttingu, tengi fyrir uppþvottavél og góð borðaðstaða. Gluggar í eldhúsi snúa mót norðri með útsýni yfir Rjúpnahæðina.
Stofan liggur í framhaldi af eldhúsinu, parketlögð með hurð út á góðar svalir (11,2 m2) sem snúa mót suð-austri, gott útsýni yfir grænt og opið svæði fyrir aftan húsið og út að golfvallasvæðinu.
Sér geymsla (7,4 m2) með opnanlegum glugga
Íbúðin er afar vel um gengin og snyrtileg og sömu sögu að segja um sameignina. Af sameiginlegum svölum er útsýni yfir Esjuna.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla Stæði í lokaðri bílageymslu er sérmerkt stæði (0025), búið er að taka inn rafkerfi til að tengja hleðslustöðvar í stæðum eftir óskum eigenda, sömuleiðis eru tvær hleðslustöðvar á sameiginlegum stæðum fyrir framan húsið. Rjúpnasalir eru vel staðsett innan hverfisins, leikskóli, skóli og íþróttamannvirki í göngufjarlægð, opin leiksvæði og stutt í óspillta náttúru. Þá er stutt í verslun og þjónustu
Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























