HÚSASJÁ

Vatnsendablettur 717

01-0101 · 203 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
59 myndir

270 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

3

Baðherbergi

2004

Byggingarár

1100 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



94 dagar á sölu

sell

219.900.000 kr

813.842 kr/m²

Glæsilegt einbýlishús með stórbrotnu útsýni við Elliðavatn - Vatnsendablettur 717, 203 Kópavogur

Einstakt tækifæri til að eignast náttúruperlu á höfuðborgarsvæðinu umlukna náttúru eins og hún gerist best.

Trausti fasteignasala og Mirabela Aurelia Blaga, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu nútímalegt og fjölskylduvænt einbýlishús að Vatnsendabletti 717, 203 Kópavogi. Eignin er skráð hjá FMR sem 226-7058 og er birt stærð 270,2 fm.

Neðri hæð:

Gengið er inn á neðri hæð hússins beint inn frá bílastæði.

Anddyri rúmgott með innbyggðum fataskáp og flísum á gólfi.

Svefnherbergi I er stórt með góðu skápaplássi og flísum á gólfi.

Baðherbergi rúmgott með innangengri sturtu, góð innrétting, innbyggð blöndunartæki, gluggi og upphengt salerni. Flísar á gólfi og veggjum.

Stofa og borðstofa einstaklega björt og rúmgóð með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð og parket á gólfi. Útgengt er út á verönd úr stofunni.

Eldhús opið og bjart með vandaðri sérsmíðuðum innréttingum, innbyggð uppþvottavél, stór eyja með span helluborði og mjög gott skúffupláss. Flísar á gólfi.

Þvottahús er með góðri innréttingu, fjórar skúffur fyrir óhreint þvott, vask, vinnuborðum og flísar á gólfi. Sér útihurð er úr þvottahúsinu.

Geymsla mjög rúmgóð.

Bílskúr einstaklega rúmgóður, með stórri bílskúrshurð og flísar á gólfi.

Frá stofu og eldhúsi er aðgangur að stórri verönd með heitum potti.

Stórt steypt bílaplan er fyrir framan bílskúr og því gott aðgengi bæði innan sem utan bílskúrsins.

Efri hæð:

Upp af holi liggur sérsmíðaður parketlagður stálstigi, upp á efri hæð.

Hjónaherbergi er mjög rúmgott með fataherbergi og litlu salerni, með stórum gluggum með glæsilegu útsýni og útgangi á svalir.

Baðherbergi á hæðinni er bæði með baðkari og innangengri sturtu, góð innrétting, innbyggð blöndunartæki, gluggi, upphengt salerni og mjög mikið skápapláss. Flísar á gólfi og veggjum.

Svefnhebergi II rúmgott, með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnhebergi III rúmgott, með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Svefnhebergi IV mjög stórt með góðu skápaplássi og parket á gólfi.

Gólfefni og hönnun:

Flísar eru á öllum gólfum að undanskildum stofunni og svefnherbergjum á efri hæð. Gólfhiti er í húsinu. Mikið lofthæðarbrag er á allri neðri hæð sem gefur stofu og eldhúsi einstaklega fallegt, opið og bjart yfirbragð. Allar innréttingar í húsinu eru sérsmíðaðar.

Allir gluggar voru teknir í gegn fyrir rúmlega ári síðan.

Lóð:

Lóðin er 1.100 fm og er leigð beint af landeigendum á Vatnsenda. Eignin nýtur óhindraðs aðgengis og fallegs útsýnis að Elliðavatni.

Nánari upplýsingar veitir Mirabela Aurelia Blaga Löggiltur fasteignasali, í síma 699-0911, tölvupóstur mirabela@trausti.is eða Kristján Baldursson, löggiltur fasteignasali, í síma  867-3040 eða tölvupóstur kristjan@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Vatnsendablettur 717

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56Mynd 57Mynd 58Mynd 59