Hraunbær 109D
04-0101 · 110 Reykjavík



22 dagar á sölu
99.900.000 kr
881.730 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Rögnvaldur Örn Jónsson löggiltur fasteignasali kynna Hraunbæ 109d, fallegt raðhús á tveimur hæðum í Árbæ. Garður afgirtur með góðum geymsluskúr. Stutt í alla þjónustu og í útivist.
Eignin skiptist í efri hæð með þrem svefnherbergjum og baðherbergi, neðri hæð með anddyri, stofu, eldhúsi og þvottahúsi. Sérmerkt bílastæði fylgir húsinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson á rognvaldur@eignamidlun.is eða í síma 660-3452
***Smellið hér fyrir söluyfirlit***
Nánari lýsing eignarinnar:
Anddyri er flísalagt með fataskáp.
Stofa/borðstofa er björt með útgengi á suður verönd. Parket á gólfi.
Eldhús er með snyrtilegri hvítri innréttingu, háf, innbyggðri uppþvottavél og innbyggðum ísskáp.
Þvottahús er rúmgott með vaska innréttingu og er flísalagt.
Gengið er upp teppalagðan stiga á efri hæðina með fallegu handriði.
Þrjú svefnherbergi eru á hæðinni og hjónaherbergið er með góðum fataskáp og útgengi út á svalir.
Baðherbergið er flísalagt með upphengdu salerni, baðkari með sturtu, hví innrétting með vask.
Garðurinn á milli húsanna er skjólsæll og lokaður. Fyrir aftan hús er garður afgirtur og lokaður með góðri útigeymslu.
Frábært fjölskylduhús sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Örn Jónsson Löggiltur fasteignasali, í síma 6603452, tölvupóstur rognvaldur@eignamidlun.is eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





































