Norðurbrú 5
01-0104 · 210 Garðabæ



32 dagar á sölu
105.900.000 kr
863.081 kr/m²
NADIA KATRÍN OG DOMUSNOVA KYNNA: EINSTAKLEGA FALLEG 122.7FM ÚTSÝNISÍBÚÐ Í LYFTUHÚSI SJÁLANDINU. OPIÐ ELDHÚS OG STOFA. ÞRJÚ SVEFNHERBERGI, RÚMGÓÐ VERÖND, ÞVOTTAHÚS INNAN ÍBÚÐAR. BÍLASTÆÐI Í LOKUÐUM BÍLAKJALLARA.
Lýsing eignar:
Komið er inn í flísalagða forstofu með góðu skápaplássi. Eldhúsið er opið inn í stofu með eikarinnréttingu, eldunareyju með góðu vinnu plássi og granít borðplötum. Niðurtekið loft er yfir eyjunni með innbyggðri lýsingu og fallegum háfi. Stofurýmið er opið og bjart með fallegum útsýnishornglugga yfir ylströndina. Baðherbergið er flísalagt með góðu skápaplássi, upphengdu salerni og baðkari með sturtu. Þvottahús er innan íbúðar, flísalagt með miklu skápaplássi og góðri vinnuaðstöðu. Svefnherbergin þrjú eru öll með góðu skápaplássi og úr hjónaherbergi er útgengi út á mjög rúmgóða og skjólgóða verönd. Í sameign er rúmgóð geymsla og hjólageymsla og sér bílastæði í lokuðum bílakjallara. Einstaklega skemtileg eign á vinsælum stað. Stutt í hjóla og gönguleiðir og ylströndina. Ekki missa af þessari perlu.
Nánari upplýsingar veita:
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Nadia Katrín Banine löggiltur fasteignasali / s.692 5002 / nadia@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


























