HÚSASJÁ

Vatnsstígur 19

05-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

85 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

5123 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Þvottahús



499 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

998.824 kr/m²

RE/MAX og Guðrún Lilja löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu:  Falleg og vel skipulögð tveggja herbergja 85,0 fm. íbúð á fyrstu hæð í góðu lyftuhúsi á besta stað í miðbæ Reykjavíkur.  Íbúðin er með aukinni lofthæð og skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi og stofu, eitt rúmgott svefnherbergi og baðherbergi með tengi fyrir þvottavél. Vestur svalir með útsýni til sjávar.  Sérgeymsla íbúðar 9,7 fm. er staðsett í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu. Myndavélakerfi er í sameign og aðgangsstýring inn í húsið. Eigninni fylgir gott bílastæði í lokaðri bílgeymslu. Húsvörður er í húsinu.

Góð eign á eftirsóttum stað í Skuggahverfinu. Stutt í alla helstu þjónustu og verslanir, einnig fallegar göngu og hjólaleiðir við sjávarsíðuna.

KÍKTU Í HEIMSÓKN OG SJÁÐU EIGN Í 3D MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

FÁÐU SÖLUYFIRLIT MILLILIÐALAUST MEÐ ÞVÍ AÐ SMELLA HÉR

Nánari lýsing:

Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi, flísar á gólfum. Þaðan er gengið inn í rúmgott og bjart alrými.

Eldhús er hálf-opið til stofu, með góðri viðarinnréttingu og flísum á milli skápa.  Nýlegt helluborð, vifta og bökunarofn í vinnuhæð. Parket á gólfum.

Stofa er parketlögð í opnu og björtu rými með gólfsíðum gluggum og með útgengt út á 6,5 fm. vestur svalir með útsýni til sjávar.

Svefnherbergi er rúmgott og bjart með mjög góðu skápaplássi. Gólfsíðir gluggar og einnig útgengt út á svalir.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með sturtubaðkari, viðarinnréttingu og góðum speglaskáp. Einnig er tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla íbúðar er 9,7 fm.,staðsett í sameign ásamt sameiginlegu þvottahúsi, með sér rafmagnsmæli fyrir íbúð. Hjóla- og vagnageymslu jafnframt í sameign.

Bílastæði íbúðar merkt 09B034 er í lokaðri bílgeymslu,keyrt inn frá Skúlagötu. Þvottaaðstaða er til staðar og grunnstöð fyrir rafmagnsbíla.

Nálægðin við iðandi mannlíf miðborgarinnar setur Skuggahverfið í flokk eftirsóttustu hverfa borgarinnar. Menningin blómstrar í miðborginni og það að búa í göngufæri við leikhús, kvikmyndahús og tónlistarhús býður upp á einstaka möguleika.  Fjölmörg kaffihús og fjölbreyttir veitingastaðir eru í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar gefur Guðrún Lilja Tryggvadóttir, löggiltur fasteignasali í síma 867-1231, gudrunlilja@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.   2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.  3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.   4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.

Kort af Vatnsstígur 19

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu