HÚSASJÁ

Rjúpnasalir 14

01-1201 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

91 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

5258 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



194 dagar á sölu

sell

75.900.000 kr

838.674 kr/m²

Rúmgóð og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 12. hæð í góðu lyftuhúsi með rúmgóðum svölum til suðaustur og stæði í bílageymslu. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni.

Sameign eintaklega snyrtileg. Næg bílastæði. Samkvæmt teikningu er íbúðin 3ja herbergja en stofan er einstaklega rúmgóð eins og skipulagið er í dag.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 90,5 fm og þar af er geymsla 7,1 fm.

Sæktu söluyfirlit hér

Nánari lýsing:

Forstofa er rúmgóð með fataskáp.

Eldhús með L-laga innrétting með efri og neðri skápum, pláss fyrir innbyggða uppþvottavél, helluborð, gufugleypir, ofn í vinnuhæð.   Eldhús er opið við stofu og borðstofu.

Stofa/borðstofa er björt með glugga í suður og útgengi út á rúmgóðar suðaustur svalir með flísum á gólfi. Fallegt útsýni.

Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi.

Baðherbergi með sturtu, góð innrétting, salerni, handklæðaofn og flísalagt í hólf og gólf.

Þvottahús er innan íbúðar með góðu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla íbúðarinnar er á jarðhæð hússins.

Stæði í bílageymslu er merkt íbúðinni. Búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð. Mjög góð sameiginleg þvottaaðstaða með háþrýstitæki

Dúkur á öllum gólfum nema baðherbergi en þar eru flísar.

Hér er um að ræða frábæra staðsetningu í Salarhverfi Kópavogs með góðar almenningssamgöngur. Stutt er í helstu þjónustu og verslanir. Leik- og grunnskólar eru í göngufæri ásamt góðri íþróttaaðstöðu og sundlaug. Fallegar göngu- og hjólaleiðir  eru við fjölbýlið og golfvöllurinn við Leirdal rétt við húsið.

Tvær lyftur eru í húsinu er nýbúið að skipta um stýrikerfi í þeim. Sameign er einstaklega snyrtileg og vel umgengin.

Allar nánari upplýsingar veitir Auðun Ólasson löggiltur fasteignasali í síma 894-1976 eða á netfanginu audun@trausti.isForsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Rjúpnasalir 14

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð