HÚSASJÁ

Sambyggð 16

01-0104 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
17 myndir

73 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2002

Byggingarár

2170 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



56 dagar á sölu

sell

44.500.000 kr

607.094 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali 891 8891 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Sambyggð 16 íb. 104, Selfossi.  Góð og virkilega snyrtileg þriggja herbergja 73,3 fm íbúð með sérinngangi og geymslu á jarðhæð. Frábær fyrstu kaup.

Húsið var byggt árið 2002 úr forsteyptum einingum sem eru steinaðar að utanverðu.   Snyrtileg timburverönd sem er sérafnotaflötur og skjólgirðing.

Innra skipulag: Forstofa með fata/tækja skáp. Eldhús og stofa í opnu rými, snyrtileg innrétting með endurnýjaða efri skápa.  Innfelldur ísskápur.  Útgengt á verönd með heitum potti úr stofu. Tvö svefnherbergi annað með fataskáp.  Flísalagt endurnýjað baðherbergi með sturtuklefa, innréttingu og upphengdu wc.

Hiti er í gólfum með stýringum. Sérgeymsla á jarðhæð og sameiginleg þvott, hjóla og vagnageymsla.

Virkilega snyrtileg íbúð sem hefur talsvert verið endurnýjuð á undanförnum árum og má þar nefna gólfefni, baðherbergi, eldhús að hluta og settir hafa verið upp hljóðveggir í nokkrum rýmum.  Rafhleðslustöð tengd inn á rafmagnsmæli íbúðar fylgir með.  Í forstofu er tækjaskápur þar sem gert er ráð fyrir þvottavél/þurkara.

Góð og snyrtilegt íbúð. Stutt í skóla og leikskóla.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Sambyggð 16

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð