Hraunberg 4
01-0302 · 111 Reykjavík



166 dagar á sölu
42.900.000 kr
409.742 kr/m²
LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
***FJÁRFESTINGARKOSTUR - FRAMTÍÐARMÖGULEIKAR Á AÐ BREYTA HÚSNÆÐI Í ÍBÚÐ EÐA ÚTLEIGUHERBERGI***
Um er að ræða atvinnuhúsnæði á 3. hæð á grónum stað í miðju íbúðahverfi í Breiðholti með alla helstu þjónustu í næsta nágrenni ásamt skóla, leikskóla, strætóleiðum, sundlaug, íþrótta-og útivistarsvæðum. Búið er að skipta rýminu upp í 5 herbergi með aðgengi að salerni og sturtu, eldhúsi og tengi fyrir þvottavél Eignin er skráð 104,7 fm samkvæmt HMS en gólfflötur er töluvert meiri (ca. 150 fm) þar sem mikið rými fer undir súð.
Hugsanlega er hægt að breyta eigninni í íbúðarhúsnæði en það hefur verið gert í öðrum eignum í húsinu. Rýmið er með möguleika á miklu útsýni ef bætt yrði við gluggum og svölum.
Sameiginlegur inngangur inn í eignina sunnan megin við hús - Snyrtilegur stigagangur.
Eignin skiptist í:
Stigahús, anddyri, herbergjagang, fimm misstór herbergi öll með þakglugga og tengi fyrir þvottavél, vask og sturtu, sameiginlegt baðherbergi með salerni, sturtu og innréttingu með vaski.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn um sameiginlegan inngang í húsnæði sunnan megin í húsi. Þegar komið er upp stigann er komið inní anddyri og á herbergjagang. Af herbergjagangi er gengið inn í herbergin fimm:
Herbergi I sem er stærra en hin með lítilli setustofu og eldhúsaðstöðu, tengi fyrir þvottavél og svefnherbergi innaf. (ísskápur og uppþvottavél fylgir með)
Herbergi II með nettri eldhúsaðstöðu í öðrum endanum, í hinum endanum er búið að stúka af rými með sturtu, vaski og tengi fyrir þvottavél.
Herbergi III með stúkað af í öðrum endanum rými með sturtu, vaski og tengi fyrir þvottavél.
Tvö rúmgóð herbergi með sameiginlegt rými fyrir framan herbergin með nettri setustofu og vaski, stórir þakgluggar yfir rýminu sem gefa mikla birtu, þar er einnig stúkað af rými fyrir sturtu, vask og tengi fyrir þvottavél.
Húsið var yfirfarið og tekið út af verkfræðistofu fyrir nokkrum árum síðan og lagfært það sem þurfti:
-Húsið múrviðgert og málað
-Þak málað
-Gler endurnýjuð eftir þörfum
-Þeir þakgluggar sem átti eftir að endurnýja voru endurnýjaðir
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / freyja@landmark.is)Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna



















