Hraunberg 4
01-0208 · 111 Reykjavík



390 dagar á sölu
145.000.000 kr
500.518 kr/m²
LANDMARK FASTEIGNAMIÐLUN 512.4900 KYNNIR:
**LEIGUTEKJUR / HERBERGJAÚTLEIGA**
Um er að ræða verulega snyrtilegt og vel skipulagt 289.7 fm atvinnuhúsnæði á grónum stað í miðju íbúðahverfi í Breiðholti.
Húsnæðið er innréttað í dag með 10 herbergjum, undir herbergjaleigu, góð lofthæð og góðir gluggar á þrjá vegu.
Einn sérinngangur er inn í húnæðið og eins er sameiginlegur inngangur sunnan megin við hús.
Eignin er í dag skráð á þremur fastanúmerum: 226-3333 / 226-3334 / 226-3335
Góðar leigutekjur eru af húsnæði í dag.
Góður fjárfestingarkostur, góðar leigutekjur eða t.d. fyrir verktakafyrirtæki sem vantar heimili fyrir starfsmenn sína.
Framtíðarmöguleikar á að breyta húsnæði í íbúðir.
Mjög stutt er í skóla, leikskóla, alla þjónustu, strætóleiðir, sund, íþróttar og útivistarsvæði.
HÚSNÆÐIÐ GETUR VERIÐ LAUST TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.
Upplýsingar um eign og bókun á skoðunartíma:
Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
FÁÐU SENT SÖLUYFIRLIT YFIR EIGN STRAX HÉR
Eignin skiptist í:
Stigahús, anddyri, herbergjagang, tíu misstór gistiherbergi öll með gluggum, tvær snyrtingar/baðherbergi með sturtuklefa, tvö þvottaherbergi/ræstigeymslur með þvottavél og þurrkara, sameiginlegt eldhús, setustofa.
Þvottavélar, þurrkarar í ræstiherbergjum og ísskápur í eldhúsi getur fylgt með í kaupum.
Nánari lýsing á eign:
Komið er inn um sérinngang á austurenda húss og inní stigahús, þá er einnig sameiginlegur inngangur í húsnæði sunnan megin í húsi.
Þegar komið er upp stigann er komið uppí anddyri og á herbergjagang.
Af herbergjagangi er gengið inn í herbergin, öll herbergin eru með snyrtilegri eldhúsinnréttingu og fataskáp. Eitt rýmið er örlítið stærra og er auka herbergi þar innaf.
Í austurenda hæðar er eldhús með snyrtilegri eldhúsinnréttingu með efri og neðri skápum, borðkrókur og eins er setustofa/sameiginlegt rými á því svæði.
Tvö snyrtileg baðherbergi með sturtuklefa. Tvö þvottaherbergi eru á hæðinni.
Gólfefni: Flísar og harðparket á gólfum húsnæðis.
Fullkomið brunaviðvörunarkerfi er tengt í húnæði. Flóttaleið um glugga í herbergjum og þá eru tveir inn/útgangur úr húsnæði.
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900.820 eða sveinn@landmark.is
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir













