HÚSASJÁ

Burknavellir 17A

01-0401 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

91 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Baðherbergi

2004

Byggingarár

6689 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



177 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

767.289 kr/m²

STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Bjarta 91,1 fm 4ra herbergja endaíbúð á 4. hæð í lyftublokk með glugga í þrjár áttir, stæði í bílageymslu og svalalokun. Stutt er síðan að settir voru upp myndavélakerfi á geymslugöngum í sameign og í bílageymslu. Einnig er allt tilbúið til að setja upp hleðslustöð við bílastæði í bílageymslu. Þá hefur ytra byrði fengið viðhald eftir þörfum. Einnig voru settar upp fjórar hleðslustöðvar, tveir staurar með tveimur hleðslum hvor. Stutt er í alla þjónustu, Haukasvæðið er nánast í bakgarðinum. Skóli og leikskóli er líka í göngufæri.

Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is

Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.

Hol er með parketi á gólfi.

Stofa er með parketi á gólfi og þaðan er útgengt á suðursvalir með svalalokun og skemmtilegu útsýni til suðvesturs.

Eldhús er með korkflísum á gólfi, viðarinnrétting og veggplötur á milli efri og neðri skápa.

Svefnherbergin eru þrjú og eru með parketi á gólfum og skápar í tveimur af þrem herbergjum.

Baðherbergi er með flísar á gólfi, wc, skápar undir vask og yfir ásamt baðkari með sturtu.

Þvottahús er með flísar á gólfi ásamt vinnuborði, vask, hillum og snúrum.

Geymsla er í sameign.

Hjóla- og vagnageymsla er í sameign.

Stæði í bílageymslu í bílakjallara.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Burknavellir 17A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu