Burknavellir 17C
03-0103 · 221 Hafnarfirði



32 dagar á sölu
84.900.000 kr
765.555 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Díana og Hulda löggiltir fasteignasalar hjá fasteignasölunni Garður kynna bjarta og vel skipulagða fjögurra herbergja íbúð sem er staðsett á jarðhæð að Burknavöllum 17c, 221 Hafnarfirði. Samkvæmt fasteignamati er hún 110,9 fermetrara.
Smelltu hér til að fá söluyfirlitið
Skipulag: Opið rými með eldhúsi, borðstofu, stofu, útgengt á svalir frá stofu, þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Íbúðin er jarðhæð með sérinngangi og afgirtum sólpalli með skúr, geymsla á jarðhæð og sameiginlegt hjólarými er í kjallara eignar.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísar á gólfi. Sérinngangur.
Hol: Með parketi.
Geymsla: Innaf holi með parketi.
Herbergi 1: Með parketi á gólfi og baðherbergi.
Baðherbergi innaf herbergi frá forstofu: Með innréttingu,handlaug, handklæðaofn, klósetti og sturtu.
Herbergi 2: Með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi: Fataskápur og parketi á gólfi.
Stofa/borðstofa: Með parketi á gólfi. Gengið út á svalir frá stofu þar sem er skúr og hlið er út á sameiginlegan pall.
Eldhús: Bjart með fallegri innréttingu opið inn í stofu, parket á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt á veggjum og gólfi. Innrétting með handlaug, handklæðaofn, sturtu, klósett og aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Pallur: Stór pallur með útigeymslu.
Bílastæði: Hleðslustöð og næg stæði eru fyrir utan húsið.
Parket flæðir um eignina, flísar á baðherbergjum og við inngang.
Að sögn eiganda hefur eignin verið breytt frá upphaflegum teikningum. Möguleikar á að leigja út fremra herbergi þar sem það er með baðherbergi.
Falleg íbúð á jarðhæð með sérinngangi og afgirtum sólpalli. Stutt er að ganga í grunn- og leikskóla, verslanir, sundlaug, líkamsrækt og íþróttasvæði Hauka eru í göngufæri ásamt annarri þjónustu í næsta nágrenni. Fallegar gönguleiðir eru í hverfinu, Ástjörn og Hvaleyrarvatn.
Nánari upplýsingar veita:
Díana Arnfjörð s.895 9989 Löggiltur fasteignasali
Hulda Ósk s.771 2528 Löggiltur fasteignasali
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


















