Vættaborgir 84
01-0201 · 112 Reykjavík



1 dagar á sölu
116.900.000 kr
738.005 kr/m²
Pálsson Fasteignasala kynnir:
Afar björt og rúmgóð 4 herbergja efri sérhæð með bílskúr í tvíbýli á eftirsóttum stað í Grafarvoginum. Tvennar svalir til suðurs og norðurs og er fallegt útsýni til norðurs út á sjó og yfir Esjuna.
** 3 rúmgóð svefnherbergi
** Mikil lofthæð
** Glæsilegt útsýni
** Tvennar svalir
** Sér pallur
Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Birt stærð skv. HMS er 158,4m2, þar af bílskúr 22,8m2.
Eignin skiptist í anddyri, stofu/borðstofu, eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi, geymsluloft, geymslu og bílskúr.
Nánari lýsing:
Inngangur í húsið er sameiginlegur með íbúð á neðri hæð.
Anddyri er með góðum fataskápum. Flísar á gólfi.
Stigi er upp úr forstofunni og þar er komið í bjart og opið miðrými sem tengir saman eldhús, borðstofu og stofu sem eru með mikilli lofthæð.
Eldhúsið er með góðri mahogny eldhúsinnréttingu með flísum á milli skápa, bakaraofn, span helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi.
Borðstofan er björt með gólfsíðum hornglugga sem vísar til suðurs og vesturs. Flísar á gólfi.
Stofan er björt og rúmgóð með gluggum til suðurs og vesturs. Parket á gólfi. Útgengt er á suður svalir þar sem gengið er út í garðinn á rúmgóðan pall sem tilheyrir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú og eru þau öll rúmgóð, með góðu skápaplássi. Parketi á gólfi.
Baðherbergið er með viðarinnréttingu, handlaug, salerni, sturtuklefa og baðkari. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahúsið er með veggföstum hillum og góðum þvottasnúrum. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi. Geymsluloft er yfir þvottahúsi og baðherbergi og er fellistigi í þvottahúsinu.
Bílskúrinn er 22,8m2 með flísum á gólfi, heitu og köldu vatni og rafmagnsopnara á bílskúrshurð. Sérinngangshurð er á hliðin hússins. Inn af bílskúrnum er geymsla sem er 7,4m2 með veggföstum hillum.
Hitalögn er í plani og er kerfið með innspýtingu.
Framkvæmdir síðustu ár:
2020 Parket slípað og lakkað
2021 Handklæðaofnar settir upp í forstofu og bílskúr
2022 Hurð sett úr íbúð í bílskúr
2023 Nýtt grindverk milli garða
2023 Nýr Siemens blástursofn í eldhús
2024 Ný innrétting og blöndunartæki á bað ásamt handklæðaofni
2025 Pallur og grindverk olíuborin
2025 Nýr geymsluskúr settur upp á pallinn
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna





































