HÚSASJÁ

Burknavellir 5

01-0103 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
21 myndir

91 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

2053 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



129 dagar á sölu

sell

67.900.000 kr

746.154 kr/m²

RE/MAX og Ingi Þór Löggiltur fasteignasali Kynnir:  Burknavellir 5 jarðhæð.

Vel staðsett 91.fm íbúð með verönd, sérlega góðu aðgengi og sérmerktu bílastæði við íbúð.

Eign skiptist í:  Forstofu/gang, tvö svefnherbergi, geymslu innan íbúðar, þvottahús, baðherbergi, eldhús, stofa og hlutdeild í sameign.

Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu með dökkum flísum á gólfi og ágætum viðarlituðum fataskáp.  Svefnherbergi eru tvö, bæði með flísum á gólfi og ágætum fataskápum í hjónaherbergi.  Rúmgóð geymsla er innan íbúðar sem í dag er nýtt sem skrifstofa og væri hæglega hægt að nýta sem 3. svefnherbergið, öndun er í rýminu.  Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, hvítri innréttingu og flísalögð sturtuaðstaða er stúkuð af með öryggisgleri.  Þvottahús er innan íbúðar, með innréttingu, flísum á gólfi og ágætu geymsluplássi.  Eldhús er með viðarlitaðri innréttingu, bakaraofni með helluborði, efri og neðri skápum.  Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.  Opið er milli eldhúss og stofu.  Stofa er björt með gluggum í suður, með flísum á gólfi. Gengið er út á skjólgóða suðurverönd með skjólveggjum milli stofu og eldhúss.

Helstu kostir:

Sérmerkt bílastæði við inngang.

Skjólgóð suðurverönd.

Rúmgóð geymsla innan íbúðar – mögulegt 3. svefnherbergi

Björt og opin stofa með suðurgluggum.

Sér þvottahús innan íbúðar.

Burknavellir 5 er Stenað, staðsteypt hús, byggt árið 2003, sem stendur á skjólgóðum, rólegum stað á Völlunum í Hafnarfirði, stutt í er skóla, sem og alla helstu þjónustu á svæðinu.

Nánari upplýsingar veita:

Ingi Þór Löggiltur fasteignasali Ingi@remax.is/ 698-4450

Nikolína Rúnarsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala. nikka@remax.is/ 847-8246.

Kort af Burknavellir 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu