HÚSASJÁ

Berjavellir 2

01-0408 · 221 Hafnarfirði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

104 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

3459 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



170 dagar á sölu

sell

74.900.000 kr

719.500 kr/m²

Falleg og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með góðum yfirbyggðum svölum og stæði í bílakjallara í  lyftuhúsi við Berjavelli 2 í Hafnarfirði.

Eignin er alls 104,1 fm og skiptist þannig að íbúð er 100 fm og geymsla 4,1 fm skv. Fasteignaskrá.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa: komið er inní rúmgóða forstofa með skáp og flísum á gólfi

Hjónaherbergi og tvö barnaherbergi með skápum og parketi á gólfi.

Baðherbergi með stórri "walk-in" sturtu, handklæðaofn, hita í gólfi, og innréttingu með hillum. Flísalagt í hólf og gólf, opnanlegur gluggi.

Eldhús og stofa í björtu alrými og þaðan útgengt út á yfirbyggðar svalir með þiljum á gólfi.

Eldhúsinnrétting er ljós viðarinnrétting með stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Flísar á gólfi.

Mikið og gott geymslurými er í innréttingunni.

Þvottahús og geymsla er innan íbúðar með innréttingu undir þvottavél og þurrkara. Hillur á veggjum og flísar á gólfi.

Gegnheilt parket úr hlyn á gólfum íbúðar.

Sér stæði í bílakjallara merkt 01B21 , komin hleðslustöð.

Sérgeymsla er einnig í sameign ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu.

Sameiginleg dekkjageymsla er í bílakjallara.

Mjög góð sameign þar sem til að mynda eru tvennar hjólageymslur, Fundasalur er einnig í sameign.

* Tæki í eldhúsi nýleg

* Baðherbergi tekið árið 2021.

* Hleðslustöðvar fyrir rafbíla komnar á sameiginlegt bílastæði.

* Nýlega hefur verið skipt um álklæðningu á þrem hliðum á blokkinni ásamt því að allir gluggar hafa verið málaðir.

Frábær staðsetning á Völlunum í Hafnarfirði þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslanir líkamsrækt, íþróttaiðkun,  tengibraut og fleira.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Berjavellir 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Berjavellir 2, 01-0408 | Húsasjá