HÚSASJÁ

Andrésbrunnur 9

01-0102 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

113 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2003

Byggingarár

8051 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



115 dagar á sölu

sell

82.900.000 kr

736.234 kr/m²

Borg fasteignasala og María Mjöll kynna Andrésbrunn 9 – fjögurra herbergja íbúð á jaðhæð ásamt palli og stæði í þriggja bíla bílageymslu.

Eignin er vel staðsett neðst í Andrésbrunninum.

Heildarfermetrafjöldi eignarinnar er 112,6.

** Bókið skoðun hjá Maríu Mjöll í síma 866-3934 **

Skipulag: Forstofa, stofa, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, geymsla (hvorutveggja innan íbúðar) stæði í lokaðri þriggja bíla bílgeymslu, rúmgóður pallur útfrá stofu.

Nánari lýsing:

Forstofa: Flísar á gólfi og fataskápur

Eldhús: Eldhúsinnrétting er L - laga með góðu skápaplássi, skápar ofan og neðan borðplötu og flísar á milli, parket á gólfi.

Stofa/borðstofa: Eru í opnu rými með eldhúsi, parket á gólfi. Útgengt er út á rúmgóðan pall sem snýr til suðurs.

Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum, upphengt salerni, baðkar með sturtuaðstöðu, baðinnrétting með handlaug.

Barnaherbergin eru tvö: Bæði með parketi á gólfum og fataskápum

Hjónaherbergi: Er rúmgott með parketi á gólfum og góðum skápum.

Þvottahús / geymsla: Er innan íbúðar, mjög rúmgott rými.

Annað: Íbúðinni fylgir bílastæði í lokaðri þriggja bílageymslu, í sameign er vagna og hjólageymsla. Lyfta er í húsinu.

Nánari upplýsingar veitir: María Mjöll Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8663934 eða maria@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Andrésbrunnur 9

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24