HÚSASJÁ

Naustabryggja 20

01-0209 · 110 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

125 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2002

Byggingarár

2226 m²

Lóð

Garður

Bílskúr



298 dagar á sölu

sell

84.900.000 kr

681.380 kr/m²

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu Naustabryggju 20, rúmgóða og bjarta þriggja herbergja íbúð á annarri hæð á besta stað í Bryggjuhverfinu. Nýlegt harðparket frá Birgisson á gólfum. Stór og gróinn inngarður og stórar og rúmgóðar svalir. Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir og er það óvenju rúmgott.

Samkvæmt skráningu HMS er íbúðin 124,6 m2 og er sérgeymsla í sameign 7,6 m2 þar af.

Athugið að seljandi er tilbúinn að veita seljendalán upp að allt að 5.000.000.-

Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.

Nánar lýsing eignar:

Komið er inn á rúmgott anddyri með góðu skápaplássi

Alrými stofu boðstofu og eldhúss er stórt og rúmgott og þaðan er útgengt út á rúmgóðar svalir.

Eldhúsið er með fallegri og vandaðri innréttingu frá Brúnás og stórri eyju.

Stofa og borðstofa eru stórar og bjartar með nýlegu harðparketi á gólfi.

Hjónaherbergið er stórt og rúmgott með góðu skápaplássi. Harðparket á gólfi.

Barnaherbergið er stórt og rúmgott og með góðum skáp. Harðparket á gólfi.

Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með stórum "walk-inn" sturtuklefa.

Sérgeymsla er í sameign ásamt hjóla- og vagnageymslu.

Bílastæði sem er óvenju stórt er í lokaðri bílageymslu. Það er búið að setja upp hleðslustöð í stæðið fyrir rafmagns- og hybrid bíla.

Lóðin er stór og gróin og er sameiginlegur inngarður fyrir aftan húsið.

Næg bílastæði eru við húsið að framanverðu.

Hér er afar falleg og smekkleg eign á ferðinni í hinu vinsæla Bryggjuhverfi þaðan sem stutt er í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Hallgrími Hólmsteinssyni í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Naustabryggja 20

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð