Langanes 11
01-0101 · 861 Hvolsvelli



604 dagar á sölu
46.000.000 kr
709.877 kr/m²
Eignamiðlun kynnir:
Fallegt 64,8 fm sumarhús á 11.700 fm lóð í skipulagðri byggð við Langanes 11, rétt áður en komið er að Hvolfsvelli. Aðalhúsið er skráð 46 fm en það fylgja með tvö hús á lóð, Lóðin lyggur að Rangá. Falleg timburverönd er í kringum húsið og eru næg bílastæði þar sem lóðin er stór. Hugsanlega væri hægt að byggja annað hús á lóðinni, teikningar liggja fyrir að 25 fm húsi. Búið er að kaupa nýjan rafmagns pott sem fylgir með en eftir er að flytja á staðinn. Keyptur frá Jóni Bergssyni.
Aðalhúsið skiptist þannig: Gengið er inn í forstofu með parketi á gólfi. Til hægri er parketlögð stofa með mikilli lofthæð og útsýni. Eldhúsið er hluti af stofu með tækjum sem að fylgja. Veggir og loft eru klædd með fallegu timbri. Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði parketlögð. Baðherbegið er með flísum á gólfi, sturtuklefa og glugga.
Aukahúsin sem eru skráð 10,7 fm og 8,1 fm og nýtast sem herbergi og baðherbergi. Timburverandir eru við aukahúsin. Um er að ræða leigulóð, leigð til 75 ára frá árinu 2001. Innbú getur fylgt. U.þ.b. 75 mín. akstur frá Reykjavík.
Nánari lýsing eignarinnar:
veita Hilmar Þór Hafsteinsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9098, tölvupóstur hilmar@eignamidlun.is og Daði Hafþórsson Lögg. fasteignasali/leigumiðlari, í síma 824-9096, tölvupóstur dadi@eignamidlun.is og eða skrifstofa Eignamiðlunar í síma 588-9090
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir










































