HÚSASJÁ

Kirkjustétt 40

03-0101 · 113 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
45 myndir

217 m²

Stærð

6

Herbergi

5

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

2002

Byggingarár

1310 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús



37 dagar á sölu

sell

159.900.000 kr

735.849 kr/m²

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallegt og vel skipulagt raðhús við Kirkjustétt 40 í Reykjavík. .

Um er að ræða 217,3 m2 endaraðhús með 5 svefnherbergjum ásamt bílskúr á góðum stað í Grafarholti þar sem stutt er í alla þjónustu. Góð aðkoma er að húsinu.

Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson lgfs í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is.

Nánari lýsing eignarinnar:

Neðri hæð:

Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp. Á vinstri hönd er gengið inn í snyrtilegan bílskúr. Inn af forstofu er gengið inn í stofu/borðstofu þar sem útgengt er út á fallega verönd. Parket á gólfum. Eldhúsið er með góðri innréttingu og flísum á gólfi. Á hæðinni er lítið gesta salerni sem og rúmgott þvottahús með góðri vinnuaðstöðu. Þaðan er útgengt í garðinn. Hiti er í gólfum.

Efri hæð:

Gengið er upp parektlagðan stiga og komið upp í bjart hol/setustofu þar sem stórir gluggar taka á móti og hátt er til lofts. Eftri hæðin hefur að geyma 5 rúmgóð herbergi, öll björt og falleg og með aukinni lofthæð. Úr einu þeirra er útgengt út á suðursvalir. Á hæðinni er einnig rúmgott baðherbergi með stóru baðkari og ágætri sturtu. Parket er á allri hæðinni fyrir utan baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf.

Hér er um að ræða virkilega skemmtilega og vel staðsetta eign á besta stað í Grafarholti þar sem stutt er í alla þjónustu sbr. skóla og leikskóla.  Fallegar gönguleiðir eru í nágrenninu og stutt í fallega náttúruna.

Húsið hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum tíðina.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Kirkjustétt 40

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45